
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing og Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðing í þættinum Skipulagsmál, um sprunguhættu og skipulag byggðar. Páll sagði nánast allt tjónið sem orðið hefur í Grindavík vegna jarðskorpuhreyfinga stafa af því að hús voru byggð þar sem sprungur liggja og að rétt nýting þeirrar þekkingar sem fyrir lá hefði getað komið í veg fyrir tjónið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Hús byggð beint yfir þekktar sprungur
Hjördís spurði hvort vitað hefði verið um sprungurnar í Grindavík þegar húsin voru byggð.
Páll svaraði að sumar þeirra hefðu verið þekktar. Hann nefndi Stamphólsgjá sérstaklega og sagði það gamalt örnefni. Hús hefðu verið byggð yfir gjána og væru þau nú ónýt.
Hús sem standa við hlið sprungunnar eru hins vegar óskemmd.
Páll sagði nánast allt tjónið sem orðið hefði í Grindavík stafa af því að sprungur hreyfðust þar sem hús stóðu. Þarna sæist mjög skýrt hversu miklu skipti að nýta fyrirliggjandi þekkingu við skipulag byggðar.
Sama reynsla fékkst í Kröflu
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mannvirki á Íslandi verða fyrir tjóni vegna þess að þau standa klofvega yfir sprungum.
Páll rifjaði upp Kröfluumbrotin og sagði megnið af tjóninu þar hafa orðið af sömu ástæðu. Mannvirki sem stóðu yfir sprungum skemmdust þegar þær hreyfðust.
Reynslan frá Kröflu og Grindavík ætti því að duga til þess að farið verði eftir þeirri grundvallarreglu að ekki séu reist hús beint yfir sprungur.
Hægt að byggja innan sprungusvæða
Páll sagði alveg hægt að byggja innan sprungusveima svo framarlega sem mannvirkin væru staðsett öðrum megin við sprunguna en ekki föst yfir henni beggja vegna.
Hús sem ekki stóðu á sprungum í Grindavík hefðu orðið fyrir litlum eða engum skemmdum vegna sprunguhreyfinganna. Sama reynsla hefði fengist í Kröflu.
Þekkingin á sprungusveimum og legu sprungna væri því afar verðmæt við skipulag nýrrar byggðar. Hún gerði kleift að draga verulega úr tjóni ef henni væri fylgt eftir við ákvörðun um staðsetningu mannvirkja.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
