Pólitísk slagsíða RÚV kallar á breytingar á fjölmiðlakerfinu

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Snorra Másson, alþingismann og varaformann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu í dag, um starfsemi Ríkisútvarpsins og stöðu einkarekinna fjölmiðla. Snorri gagnrýndi pólitíska slagsíðu RÚV og sagði dagskrárgerð stofnunarinnar í auknum mæli einkennast af pólitískum áróðri. Hann vill að almenningur geti ráðstafað hluta útvarpsgjaldsins til annarra fjölmiðla og þannig stuðlað að fjölbreyttari samfélagsumræðu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Dagskrárgerð RÚV orðin pólitísk áróðursstarfsemi

Snorri gagnrýndi harðlega þá þróun sem orðið hefur í dagskrárgerð Ríkisútvarpsins. Hann sagði stofnunina í auknum mæli hafa tekið upp pólitískar áherslur sem samræmdust illa því hlutverki hennar að þjóna öllum landsmönnum.

Dagskrárgerðin hefði að hans sögn þróast í áróðursmiðstöð fyrir nýjustu strauma í svokallaðri vók-stefnu. Í stað þess að endurspegla ólík sjónarmið í samfélaginu væri ákveðnum hugmyndum haldið á lofti á meðan önnur viðhorf fengju lítið rými.

Hann gerði þó greinarmun á fréttastofunni og annarri dagskrárgerð. Á fréttastofunni störfuðu blaðamenn sem vildu sinna starfi sínu af fagmennsku, þótt pólitískar áherslur hefðu einnig áhrif á fréttavalið.

Snorri rifjaði upp að hann hefði sjálfur lengi verið mikill hlustandi Rásar 1 og haft ánægju af menningarefni stofnunarinnar. Því þætti honum sérstaklega miður hvernig dagskrárgerðin hefði þróast.

Hlutleysisskyldan orðin dauður lagabókstafur

Ríkisútvarpinu ber samkvæmt lögum að gæta hlutleysis en Snorri sagði þá skyldu hafa litla þýðingu þegar horft væri til þess hvernig stofnunin fjallaði um ýmis samfélagsmál.

Hann nefndi sérstaklega umfjöllun um kynvitund og málefni barna og ungmenna þar sem sömu sjónarmiðin fengju sífellt að ráða ferðinni.

Þeir sem hefðu aðra sýn á málin fengju sjaldan að koma henni á framfæri og gagnrýni væri gjarnan afgreidd sem andúð í garð minnihlutahópa.

Snorri gagnrýndi einnig viðbrögð við ummælum sínum um pólitíska aðgerðarsinna innan RÚV og sagði umræðuna sýna hversu viðkvæm stofnunin væri fyrir gagnrýni.

Vill að almenningur ráðstafi hluta útvarpsgjaldsins

Til að breyta stöðunni vill Miðflokkurinn að landsmenn geti ráðstafað fjórðungi útvarpsgjaldsins til þess fjölmiðils sem þeir kjósa.

Með því gætu um 2 milljarðar króna runnið til annarra fjölmiðla og skapað ný tækifæri á markaði þar sem einkareknir miðlar eiga erfitt uppdráttar. Snorri nefndi sem dæmi litla fréttamiðla með 5 blaðamenn sem gætu sinnt vandaðri fréttamennsku og boðið upp á önnur sjónarmið en þau sem væru ríkjandi hjá RÚV.

Breytingin myndi ekki verða til þess að leggja þyrfti Ríkisútvarpið niður, enda héldi stofnunin eftir þremur fjórðu hlutum útvarpsgjaldsins. Þá gætu tækniframfarir og gervigreind auðveldað fjölmiðlum að draga úr rekstrarkostnaði án þess að fagleg vinna blaðamanna hyrfi.

Ríkisstjórnin stendur vörð um óbreytt fyrirkomulag

Snorri gagnrýndi að stjórnvöld hefðu ekki viljað skoða tillöguna þrátt fyrir erfiða stöðu einkarekinna fjölmiðla.

Hann hefði ítrekað óskað eftir umræðu um breytta fjármögnun en viðbrögðin einkum falist í því að leggja áherslu á mikilvægi öflugs almannaútvarps.

Á sama tíma seldi RÚV auglýsingar í samkeppni við einkarekna fjölmiðla sem nytu ekki sambærilegrar opinberrar fjármögnunar. Snorri sagði valfrelsi almennings skipta máli fyrir lýðræðið og gagnrýndi að ríkisstjórnin legði meiri áherslu á að verja núverandi stöðu RÚV, en að skapa svigrúm fyrir aðra fjölmiðla.

Hann tók fram að Miðflokkurinn myndi beita sér fyrir breytingum á þessu fyrirkomulagi kæmist flokkurinn í ríkisstjórn.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila