Ráðast þarf í umfangsmikla íbúðauppbyggingu

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Inga Þóroddsson, oddvita Flokks fólksins í komandi borgarstjórnarkosningum í síðdegisútvarpinu í dag, um húsnæðismál og uppbyggingu í Reykjavík. Þar kom fram að flokkurinn leggur áherslu á umfangsmikla íbúðauppbyggingu, ný byggingarsvæði og skjótvirkari lausnir til að bregðast við viðvarandi húsnæðisskorti. Íbúðarhúsnæði verði að fylgja bílastæði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Stórfelld uppbygging íbúðarhúsnæðis

Guðmundur Ingi sagði, að núverandi staða á húsnæðismarkaði kalli á tafarlausar aðgerðir þar sem eftirspurn hafi verið meiri en framboð um langt skeið. Hann sagði að Flokkur fólksins hafi þegar komið að áformum um uppbyggingu nýs hverfis með um 4.000 íbúðum í Úlfarsárdal og það verkefni sé komið í farveg. Samhliða því sé horft til frekari uppbyggingar innan borgarmarka til að mæta fólksfjölgun.

Ný svæði tekin undir byggð

Í umræðunni kom fram að næstu stóru uppbyggingarsvæði verði á Keldnalandi, Geldinganesi og Gufunesi. Guðmundur sagði að skipulagsvinna sé hafin á hluta þessara svæða og þau verði lykilþáttur í að auka framboð íbúða á næstu árum. Hann lagði áherslu á, að þessi svæði séu meðal þeirra síðustu sem borgin hefur til ráðstöfunar fyrir stórfellda íbúðauppbyggingu.

Aðgengi að bílastæðum skiptir máli

Þá sagði Guðmundur að þótt skipulag liggi fyrir í grunninn þurfi að endurskoða ákveðna þætti þess, meðal annars bílastæðafjölda og fyrirkomulag hverfa. Hann lagði áherslu á að skipulag þurfi að taka mið af raunverulegum þörfum íbúa, þar sem aðgengi að bílastæðum og þjónustu skipti miklu máli fyrir daglegt líf.

Þjónusta byggð upp samhliða íbúðum

Í viðtalinu kom fram að mikilvægt sé að byggja upp innviði samhliða íbúðauppbyggingu, svo sem skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra grunnþjónustu. Guðmundur sagði að markmiðið sé að ný hverfi verði sjálfbær frá upphafi og íbúar þurfi ekki að sækja þjónustu í önnur hverfi.

Þörf á hraðari lausnum

Að lokum lagði Guðmundur Ingi áherslu á að húsnæðisvandi borgarinnar sé orðinn að langvarandi kreppu sem þurfi að leysa með skjótvirkum aðgerðum eins og ráðherrar Flokks fólksins séu að vinna að. Hann sagði að ekki sé svigrúm til frekari tafa og að aukin uppbygging sé lykilatriði til að ná jafnvægi á markaðnum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila