Ráðherrar funduðu í London um geðheilbrigðismál

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sat í vikunni tveggja daga fund um geðheilbrigðismál í London (Global Ministerial Mental Health Summit) þar sem ráðherrar heilbrigðismála frá fjölmörgum ríkjum, ásamt færasta fagfólki, frumkvöðlum og sérfræðingum á sviði stefnumótunar báru saman bækur sínar. Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að leiðtogar þjóða heims taki höndum saman og sjái til þess að geðheilbrigðismál og aðgerðir til að bæta geðheilbrigðisþjónustu fái það vægi sem málaflokknum ber.
Lagði ráðherra áherslu á mannréttindi, valdeflingu, afstofnanavæðingu geðheilbrigðisþjónustunnar og þjónustu í nærumhverfi fólks. Hún ræddi mikilvægi samvinnu þvert á stofnanir og stjórnsýslustig og gerði að umtalsefni forvarnarverkefni á borð við heilsueflandi samfélög og skóla. Eins sagði hún frá þeirri stefnu að efla hlutverk heilsugæslunnar á sviði geðheilbrigðisþjónustu með auknu aðgengi almennings að þjónustu sálfræðinga og ræddi um starfsemi nýrra geðheilbrigðisteyma um allt land. Að lokum tók ráðherra fram að vísindalegar rannsóknir eru sú vél sem mun knýja okkur áfram í framfaraátt og leiðbeina okkur um hvernig best megi að efla geðheilbrigði þjóða. Því sé mikilvægt að styrkja tengslin á milli vísinda og heilbrigðisþjónustu.
Svandís segir leiðtogafundinn hafa verið fróðlegan og gagnlegan: „Það er mikils virði að kynnast áherslum annarra þjóða og nýjustu straumum og stefnum í geðheilbrigðismálum. Það sem mér finnst afar gott að sjá er hvað stefna og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára sem samþykkt var á Alþingi árið 2016 er í góðu samræmi við yfirlýsinguna sem rædd var á leiðtogafundinum. Eftir þeirri stefnu vinnum við og þegar hún fer saman við skýr markmið um að efla heilsugæsluna með aukinni þverfaglegri þjónustu og bæta aðgengi að henni, samhliða því að draga úr greiðsluþátttöku almennings fyrir heilbrigðisþjónustu erum við tvímælalaust á réttri leið“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila