Rafmagn fór af í Eyjafirði

Rafmagnslaust varð í Eyjafirði um stund þegar rafmagn fór af rétt um klukkan hálf fjögur í nótt.

Rafmagnslaust var í um tíu mínútur og virðist rafmagnsleysið hafa verið nokkuð víðtækt. Ekki náðist í fulltrúa Norðurorku. Þá náðist heldur ekki í fulltrúa Landsnets og því liggja ekki upplýsingar fyrir um hvað það var sem olli rafmagnsleysinu.

Stutt er síðan rafmagnslaust varð í öllum Eyjafirði en þá varð svokölluð teinahreinsun í tengivirki sem varð til þess að rafmagnið fór af.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila