Rannsaka andlát í sumarhúsi í Árnessýslu

Fjórir eru í haldi lögreglu vegna mannsláts í sumarbústað í uppsveitum Árnessýslu. Málavexir eru þeir að lögreglan fékk í dag tilkynningu um meðvitundarlausan mann í sumarhúsinu.

Lögregla ásamt viðbragðsaðilum fór á staðinn en skömmu síðar var maðurinn úrskurðaður látinn.

Grunur leikur á að manninum sem var á fertugsaldri hafi verið ráðinn bani og því hafa fjórir einstaklingar sem taldir eru tengjast málinu verið handteknir. Þeir eru nú í yfirheyrslu. Að sögn lögreglu er rannsókn málsins á algjöru frumstigi og verða ekki veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila