Rannsaka andlát konu á Akureyri – einn í haldi

Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar andlát konu sem lést á Akureyri í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu rátt um hálf fimm um að konan væri meðvitundarlaus í íbúð í fjölbýlishúsi í bænum og hófu viðbragðsaðilar þegar lífgunartilraunir þegar þeir mættu staðinn.

Lífgunartilraunir báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin skömmu síðar. Grunur leikur á að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti og var einstaklingur sem einnig var staddur í íbúðinni handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Ekki eru gefnar frekari upplýsingar að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila