
Ný rannsókn Vilhelmínu Þ. Einarsdóttur á samskiptum í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar sýnir að flókin samskipti milli starfsfólks, skjólstæðinga og aðstandenda geta haft veruleg áhrif á gæði þjónustunnar, vellíðan þeirra sem hlut eiga að máli og starfsánægju starfsfólks. Niðurstöðurnar benda til þess að aukinn stuðningur við starfsfólk og markvissari nálgun í samskiptum geti dregið úr ágreiningi og bætt þjónustuna. Fjallað er um rannsóknina á vef Reykjavíkurborgar.
Flókin samskipti geta haft víðtæk áhrif
Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á því hvað veldur flóknum samskiptum í heimaþjónustu og hvernig þróa megi þjónustuna til að mæta slíkum aðstæðum betur.
Rannsóknin byggir á 6 tilfellum þar sem rætt var við skjólstæðinga, aðstandendur og starfsfólk heimaþjónustu, þar á meðal hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, félagsliða og stjórnendur. Niðurstöðurnar sýna að erfið samskipti geta aukið álag á alla sem að þjónustunni koma, dregið úr gæðum umönnunar og haft neikvæð áhrif á líðan og heilsu.
Samskipti ráðast af fleiri þáttum en einstaklingnum
Vilhelmína segir mikilvægt að líta á samskipti sem samspil allra sem að þeim koma en ekki eingöngu út frá persónuleika skjólstæðings.
Hún hefur starfað í heimahjúkrun Reykjavíkurborgar frá árinu 2006 og gegnir nú starfi kennslustjóra í heimahjúkrun samhliða M.Phil.-námi við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Fyrri vísindagrein hennar um rannsóknina hefur verið birt í alþjóðlega tímaritinu Global Qualitative Nursing Research en önnur grein, sem fjallar um sjónarhorn skjólstæðinga og aðstandenda, er í vinnslu.
Stuðningur stjórnenda skiptir miklu máli
Þrátt fyrir að allir þátttakendur rannsóknarinnar hefðu reynslu af erfiðum samskiptum kom fram að flestir upplifðu samskipti almennt góð. Það bendir til þess að fólk vilji eiga jákvæð samskipti og að hægt sé að vinna markvisst að því að styrkja þau.
Vilhelmína telur mikilvægt að starfsfólk gefi sér tíma til samskipta, sýni opinn huga og vinni lausnamiðað. Jafnframt sé nauðsynlegt að stjórnendur veiti starfsfólki stuðning og leiðsögn þegar upp koma erfið mál, enda geti langvarandi álag og vanmáttarkennd aukið líkur á að starfsfólk hætti störfum og haft neikvæð áhrif á þjónustuna í heild.
