
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Arnar Þór Jónsson, lögmann og fyrrverandi héraðsdómara, í síðdegisútvarpinu í dag, um erindi sem hann hefur sent stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrir hönd hóps Íslendinga vegna embættisfærslna Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra. Arnar sagði að ef rannsókn yrði sett af stað gæti Alþingi að hans mati ekki afgreitt frumvarpið um bókun 35 á meðan málið væri til rannsóknar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
3 nefndarmenn gætu komið rannsókn af stað
Arnar sagði þess óskað í erindinu að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kannaði hvort embættisfærslur utanríkisráðherra gætu varðað lög um ráðherraábyrgð, ákvæði almennra hegningarlaga og upplýsingaskyldu gagnvart Alþingi.
Samkvæmt þingskapalögum skal athugun fara fram ef að minnsta kosti fjórðungur nefndarmanna óskar þess. Arnar sagði það þýða að 3 þingmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd gætu nægt til að koma rannsókn af stað.
Arnþrúður spurði hvað það segði um eftirlitshlutverk Alþingis ef þingmenn stjórnarflokkanna vildu ekki rannsaka mál sem varðaði ráðherra eigin ríkisstjórnar.
Arnar sagði eftirlit með framkvæmdavaldinu vera eitt af meginhlutverkum Alþingis og lögin hefðu einmitt gert ráð fyrir því að minnihluti nefndarinnar gæti knúið fram athugun.
Bókun 35 eitt meginatriði erindisins
Bókun 35 er eitt þeirra mála sem erindið tekur sérstaklega til. Arnar sagði umbjóðendur sína telja frumvarpið breyta stöðu Alþingis og íslenskra dómstóla með grundvallarhætti.
Hann sagði frumvarpið fela í sér almenna forgangsreglu þar sem innleiddar EES-skuldbindingar gætu gengið framar öðrum almennum íslenskum lögum. Þótt Alþingi gæti á pappír mælt sérstaklega fyrir um annað væri það svigrúm að hans mati takmarkað vegna þeirra skuldbindinga sem Ísland hefði undirgengist.
Hvað gerist ef Alþingi setur lög sem ganga gegn ESB löggjöf
Arnþrúður rifjaði upp fyrra viðtal sitt við Sigurjón Þórðarson þingmann Flokks fólksins, þar sem fram kom að Alþingi gæti áfram sett lög þrátt fyrir bókun 35. Hún sagði ef Alþingi setti lög sem gengju gegn ESB reglum þá væri þeim tafarlaust vísað til ESA sem gæti óskað eftir samningsbrotamáli fyrir EFTA dómstóli og spurði Arnar um það atriði.
Arnar sagði það einmitt vera kjarna málsins. Hann taldi ekki nægja að segja að Alþingi gæti sett önnur lög án þess að jafnframt væri útskýrt hvaða afleiðingar það gæti haft gagnvart EES-samningnum.
Hann sagði einnig frumvarpið veikja stöðu íslenskra dómstóla þar sem túlkun EES-réttar fengi aukið vægi gagnvart innlendum rétti. Slík grundvallarbreyting yrði að hans mati ekki gerð án stjórnarskrárbreytingar.
Gagnrýnir afstöðu Eyjólfs Ármannssonar
Arnar tók einnig harða afstöðu til málflutnings Eyjólfs Ármannssonar ráðherra um bókun 35.
Hann sagði Eyjólf hafa lýst því fyrir síðustu þingkosningar að hann væri á móti frumvarpinu vegna efasemda um samræmi þess við stjórnarskrá. Nú styddi hann hins vegar þá leið að Alþingi samþykkti frumvarpið og dómstólar skæru síðar úr um hvort lögin stæðust stjórnarskrá.
Arnar sagði stjórnmálamenn ekki eiga að færa pólitíska ábyrgð sína yfir á Hæstarétt með þeim hætti. Það gæti að hans mati leitt til þess að dómstólar yrðu gerðir að pólitískum verkfærum í málum sem Alþingi ætti sjálft að bera ábyrgð á.
Hann sagði málflutning Eyjólfs svo ábyrgðarlausan að ráðherrann ætti að segja af sér.
Samstarfsyfirlýsing við ESB einnig hluti erindisins
Annað atriði erindisins snýr að yfirlýsingu sem utanríkisráðherra undirritaði í maí 2025 með utanríkismálastjóra ESB um aukið samstarf í utanríkismálum.
Arnar sagði umbjóðendur sína vilja að kannað yrði hvort yfirlýsingin gæti falið í sér almenna pólitíska skuldbindingu Íslands til að laga sig að ákvörðunum, yfirlýsingum og refsiaðgerðum ESB.
Þeir vilji jafnframt að rannsakað verði hvort samþykki Alþingis hafi þurft áður en yfirlýsingin var undirrituð og hvort utanríkismálanefnd hafi verið höfð með í ráðum.
ESB-tollarnir og upplýsingaskylda ráðherrans
Þriðji meginþáttur erindisins snýr að upplýsingum sem utanríkisráðherra fékk árið 2025 um fyrirhugaðar verndarráðstafanir ESB á kísilmálm og járnblendi sem gátu haft áhrif á útflutning frá Íslandi.
Arnar sagði utanríkismálanefnd ekki hafa fengið allar upplýsingarnar þegar ráðherrann kom fyrir nefndina og trúnaðargögn frá ESB hefðu ekki verið afhent fyrr en málið komst í opinbera umræðu.
Utanríkisráðherra notar þagnarskyldu þingmanna
Utanríkisráðherra hefur vísað til þess að trúnaður hafi takmarkað upplýsingagjöfina. Arnar sagði hins vegar að ráðherra hefði samkvæmt þingskapalögum getað lagt þagnarskyldu á nefndarmenn vegna tiltekinna upplýsinga.
Arnþrúður spurði hvort þagnarskylda væri stundum notuð með þeim hætti að þingmenn gætu ekki sinnt hlutverki sínu eða tekið þátt í opinberri umræðu.
Arnar sagði upplýsingaskyldu ráðherra gagnvart utanríkismálanefnd ríka, sérstaklega þegar um væri að ræða mál sem gæti haft veruleg áhrif á efnahags- og atvinnuhagsmuni Íslands.
Gæti stöðvað afgreiðslu frumvarpsins
Arnar sagði að ef 3 nefndarmenn teldu erindið gefa tilefni til rannsóknar og slík rannsókn hæfist á embættisfærslum utanríkisráðherra yrði staðan á Alþingi önnur.
Að hans mati gæti þingið þá ekki haldið áfram og afgreitt frumvarp um bókun 35 á meðan rannsókn á þeim stjórnskipulegu og lagalegu álitaefnum sem tengjast málinu stæði yfir.
Hann sagði eitt af markmiðum erindisins einmitt vera að Alþingi kannaði þessi álitaefni áður en ákvörðun yrði tekin um frumvarp sem umbjóðendur hans telja geta haft grundvallaráhrif á stöðu Alþingis, íslenskra dómstóla og fullveldi ríkisins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
