
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ingvar Smára Birgisson, lögmann hjá Firma lögmönnum og stjórnarmann RÚV, í síðdegisútvarpinu um efnahagslega stöðu Evrópusambandsins og hvaða áhrif umfangsmikið regluverk hefði haft á samkeppnishæfni álfunnar. Ingvar vísaði meðal annars til skýrslu Mario Draghi og sagði hana sýna að Evrópa stæði frammi fyrir vaxandi vanda vegna skrifræðis og aukinnar reglubyrði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Draghi varaði við minnkandi samkeppnishæfni
Pétur spurði hvort staða Evrópusambandsins hefði breyst á síðustu árum. Ingvar sagði skýrslu Mario Draghi draga upp dökka mynd af stöðu atvinnulífs í Evrópu og benda á umfangsmikið regluverk og flókið stjórnkerfi, sem hefði dregið úr samkeppnishæfni álfunnar gagnvart Bandaríkjunum og Asíu.
Að hans mati sýndi skýrslan að Evrópusambandið þyrfti að einfalda regluverk sitt ef það ætlaði að halda í við helstu samkeppnisríki heims.
Reglubyrði hafi áhrif á fyrirtæki og fjárfestingu
Ingvar sagði sífellt meiri kröfur og flóknara regluverk gera fyrirtækjum erfiðara fyrir að fjárfesta og vaxa. Hann taldi það hafa hægt á nýsköpun og dregið úr hagvexti víða í Evrópu.
Í umræðunni kom jafnframt fram að smærri ríki gætu fundið sérstaklega fyrir áhrifum slíks regluverks þar sem stjórnsýslan yrði umfangsmeiri og kostnaður við innleiðingu reglna ykist.
Ísland þyrfti að taka þátt í sameiginlegri stefnu
Pétur spurði Invar að því hvaða áhrif þetta gæti haft á Ísland ef landið gengi í Evrópusambandið. Ingvar sagði aðild fela í sér þátttöku í sameiginlegu regluverki og efnahagsstefnu sambandsins, þar á meðal á sviðum sem vörðuðu atvinnulíf og viðskipti.
Hann sagði því mikilvægt að kjósendur kynntu sér ekki aðeins kosti aðildar heldur einnig þær efnahagslegu skuldbindingar og reglur sem henni fylgdu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
