
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 5,3 milljarða króna á árinu 2025 samkvæmt ársreikningi sem lagður var fram á fundi borgarráðs í dag. Niðurstaðan er 10,1 milljarða verri en árið áður og jafnframt talsvert undir þeim áætlunum sem áður höfðu verið kynntar. Samkvæmt útkomuspá sem birt var í nóvember hafði verið gert ráð fyrir 382 milljóna króna hagnaði en í fjárhagsáætlun borgarinnar var miðað við 1,3 milljarða afgang.
Eigið fé borgarsjóðs lækkaði
Heildareignir A-hluta borgarinnar námu í árslok 308,7 milljörðum króna en skuldir og skuldbindingar voru samtals 221,7 milljarðar. Eigið fé stóð í 87 milljörðum og dróst saman um 1,7 milljarða á árinu. Fram kemur einnig að EBITDA-hlutfall A-hluta, sem sýnir rekstrarniðurstöðu fyrir afskriftir og fjármagnsliði, hafi verið 3,5 prósent af tekjum samanborið við 9,3 prósent árið áður.
Samstæða borgarinnar skilaði afgangi
Rekstrarniðurstaða samandregins reiknings A- og B-hluta Reykjavíkurborgar var þó jákvæð um 8 milljarða króna. Sú niðurstaða var engu að síður 2,7 milljörðum lakari en árið 2024 og nokkuð undir fjárhagsáætlun ársins 2025 þar sem gert hafði verið ráð fyrir 12,9 milljarða afgangi.
Aðalsjóður undir áætlunum
Rekstur Aðalsjóðs borgarinnar reyndist neikvæður um 15,8 milljarða króna. Í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir 10,3 milljarða halla og varð niðurstaðan því 5,5 milljörðum verri en áætlað var. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs var hins vegar jákvæð um 10,5 milljarða króna. Það var þó um 200 milljónum lakari niðurstaða en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
