Réttarholtsskóli sigraði í Skrekk

Úrslitakvöld Skrekks, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fóru fram í gærkvöld. Réttarholtsskóli sigraði í ár með atriðið Þetta unga fólk sem er gagnrýni á hvernig hinir eldri líta niður til unglingamenningar. Í öðru sæti var Fellaskóli með atriðið Efra Breiðholt og í þriðja sæti var Seljaskóli skóli með atriðið Yndislegt líf.

Í ár tóku 24  skól­ar og 630 unglingar tóku þátt í undanúrslitum. Átta skólar komust áfram í úrslitin. Atriðin að þessu sinni fjalla um sjálfs­mynd ung­linga, áhrif samfélagsmiðla, tónlistar- og danssögu, missi, einelti, andlega erfiðleika, upplifun ungmenna af erlendum uppruna, mikilvægi þess að njóta lífsins og hafa gaman, ádeilu á íslenskt samfélag, heimilisofbeldi og ástarsögur. Unglingarnir semja atriðin og nýta allar sviðslistir í þau auk þess sem þau sjá um  búninga, förðun, hár, ljós hljóð og nú í fyrsta skipti í Skrekk, skjávarpa

  1. Árbæjarskóli, Svið lífsins
  2. Sæmundarskóli, Af hverju ég?
  3. Seljaskóli, Yndislegt líf
  4. Réttarholtsskóli, Þetta unga fólk
  5. Fellaskóli, Efra Breiðholt
  6. Hagaskóli, Gleym mér ey
  7. Langholtsskóli, Hin fullkomna þjóð
  8. Seljaskóli, Yndislegt líf
  9. Austurbæjarskóli, Kemur í ljós

Skrekkur er samstarfsverkefni grunnskóla og félagsmiðstöðva Reykjavíkur, og RÚV.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila