
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt 2 tillögur um aðgerðir til að bæta námsárangur barna í leik- og grunnskólum borgarinnar. Áhersla verður lögð á lesskilning, stærðfræði og vísindalæsi en nýjar niðurstöður PISA sýna að íslenskir nemendur standa verr en nemendur annars staðar á Norðurlöndunum á öllum 3 sviðunum.
Íslenskir nemendur eru jafnframt undir meðaltali OECD-ríkjanna samkvæmt niðurstöðum PISA sem kynntar voru 7. september. Nemendur í Reykjavík standa þó betur en landsmeðaltalið.
Borgaryfirvöld telja niðurstöðurnar kalla á markvissar og langtímaaðgerðir og vilja eiga náið samtal við kennara og annað starfsfólk skólanna um hvernig bæta megi skólastarf í Reykjavík.
Tillögur að aðgerðum fyrir lok nóvember
Skóla- og frístundasviði hefur verið falið að móta tillögur að aðgerðum til að bæta árangur í lesskilningi, stærðfræði og vísindalæsi.
Meðal þeirra þátta sem horft verður til eru snemmtæk íhlutun, markviss eftirfylgni með námsframvindu, styrking íslensku sem annars máls og aukin fagleg forysta innan skólanna.
Einnig verður lögð áhersla á samræmd vinnubrögð og að nemendur hafi jafnan aðgang að stuðningi óháð því hvaða skóla þeir sækja eða hver bakgrunnur þeirra er.
Tillögurnar eiga fyrst að koma til umfjöllunar í skóla- og frístundaráði og leikskóla- og daggæsluráði fyrir lok nóvember. Þær verða síðan lagðar fyrir borgarráð og ræddar í borgarstjórn.
Vilja koma skólastarfi í fremstu röð
Borgarráð samþykkti jafnframt að efna til samtals við kennara og annað starfsfólk leik- og grunnskóla um framtíð skólastarfs í Reykjavík.
Á haustönn verður haldin málstofa í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Hvernig komum við skólastarfi í Reykjavík í fremstu röð?“
Í kjölfarið verður unnin samantekt og aðgerðaráætlun sem lögð verður fyrir skóla- og frístundaráð og leikskóla- og daggæsluráð og síðan rædd í borgarstjórn.
Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar leiðir vinnuna ásamt Bjarna Fritzsyni formanni skóla- og frístundaráðs og Sigrúnu Ástu Einarsdóttur formanni leikskóla- og daggæsluráðs í samstarfi við skóla- og frístundasvið.
Segir eflingu skólakerfisins mikilvægasta verkefnið
Björg segir eitt mikilvægasta verkefni kjörtímabilsins vera að efla skólakerfið í Reykjavík og koma því í fremstu röð.
Hún segir markmiðið bæði að bæta námsárangur barna og gera skóla borgarinnar að eftirsóttum vinnustöðum.
Til þess þurfi virkt samstarf kennara og annars starfsfólks leik- og grunnskóla, foreldra, skóla- og frístundasviðs og kjörinna fulltrúa.
Borgaryfirvöld hyggjast nýta niðurstöður samtalsins til að móta þær aðgerðir sem eiga að bæta námsárangur og skólastarf í Reykjavík til lengri tíma.
