
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing, í síðdegisútvarpinu, um stöðuna á húsnæðismarkaði. Guðmundur sagði þúsundir íbúða standa auðar á sama tíma og ungt fólk ætti erfitt með að komast inn á markaðinn. Ríkið ætti að hjálpa unga fólkinu að kaupa þessar íbúðir og koma jafnframt til móts við byggingariðnaðinn sem væri kominn í miklar skuldir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Húsnæðisverð farið að lækka
Guðmundur sagði húsnæðismálin vera eitt stærsta úrlausnarefnið í efnahagsmálunum. Byggingariðnaðurinn væri kominn í gífurlegar skuldir og mörg hundruð milljarðar hvíldu á byggingarfélögum.
Á sama tíma væri húsnæðisverð farið að lækka, sem væri mikil breyting frá þróun síðustu 30 ára. Á þeim tíma hefði fasteignaverð hækkað meira en verðbólgan og fasteignaeigendur því byggt upp mikla eign.
Nú væri þessi þróun að snúast við. Fjárfestar sem hefðu keypt íbúðir til að ávaxta fjármagn sitt gætu ekki lengur gengið að áframhaldandi verðhækkunum vísum.
Þúsundir íbúða standi auðar
Guðmundur sagði 7–8 þúsund íbúðir standa auðar á landinu og enginn kaupa þær.
Arnþrúður benti á nýjar upplýsingar um að 5.337 eignir væru lausar á höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur sagði að þegar landið allt væri tekið með væru lausar eignir um 12 þúsund og þar af væru 7–8 þúsund íbúðir ætlaðar venjulegu fólki.
Ástæðan fyrir því að þær seldust ekki væri einföld að hans mati: Verðið væri allt of hátt.
Hann sagði íbúðirnar hafa verið byggðar í fjárfestingarskyni og fjármagn leitað í fasteignir vegna þess að þær hefðu um langt skeið skilað betri ávöxtun en innlán í bönkum.
Ríkið verði að hjálpa unga fólkinu
Lausnin væri að nýta þessa stöðu til að koma ungu fólki inn á húsnæðismarkaðinn.
Guðmundur sagði ríkið eiga að hjálpa ungu fólki að kaupa þær íbúðir sem nú standa auðar og jafnframt hjálpa byggingariðnaðinum að losa um þær eignir sem ekki seljast.
Að hans sögn væri það skylda ríkisins að tryggja að ungt fólk gæti komið sér upp húsnæði. Vandinn yrði ekki leystur með því að horfa á þúsundir fullbyggðra íbúða standa auðar á meðan fólk sem þyrfti húsnæði kæmist ekki inn á markaðinn.
Húsnæðisbólan gæti sprungið
Guðmundur varaði við því að vandinn gæti orðið mun alvarlegri ef ekkert yrði gert. Byggingariðnaðurinn væri samkvæmt hans mati skuldugur um 500–600 milljarða króna á sama tíma og íbúðir lækkuðu í verði og seldust ekki.
Ef sú þróun héldi áfram gætu eignir farið á uppboð og íbúðir jafnvel selst fyrir mun lægra verð en áður.
Þá gæti komið upp húsnæðiskreppa þegar bólan spryngi. Guðmundur sagði afleiðingarnar geta orðið mjög alvarlegar, ekki síst vegna óvissu um hvernig fjárfestar og lífeyrissjóðir myndu bregðast við slíku áfalli.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
