
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar Alþingis í síðdegisútvarpinu um fjárlagafrumvarpið og vaxtakostnað ríkisins. Sigurjón sagði ríkið greiða vel á annað hundrað milljarða króna í vexti á ári sem jafngildi um 400 milljónum króna á dag. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þrenn Fjarðarheiðargöng fyrir vaxtagreiðslurnar
Sigurjón sagði gríðarlegar fjárhæðir fara í vaxtagreiðslur og setti kostnaðinn í samhengi við framkvæmdir sem ríkið hefur frestað. Hann nefndi Fjarðarheiðargöng sem dæmi. Framkvæmdinni hefði verið slegið á frest vegna kostnaðar en fyrir árlegar vaxtagreiðslur ríkisins mætti að hans sögn gera um þrenn slík göng.
Tíu dagar duga fyrir ársrekstri Fjallabyggðar
Sigurjón bar vaxtakostnaðinn einnig saman við rekstur Fjallabyggðar þar sem hann býr.
Ársrekstur sveitarfélagsins kostar rúmlega 4 milljarða króna. Þar undir falla meðal annars grunn- og leikskólar, slökkvilið, höfn, áhaldahús og yfirstjórn. Um 10 daga vaxtagreiðslur ríkisins nægja því að hans sögn til að reka allt sveitarfélagið í heilt ár.
Hallalaus fjárlög sögð mikilvægt skref
Sigurjón sagði fjárlagafrumvarpið gera ráð fyrir hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn frá árinu 2018 og ríkissjóður skili afgangi. Það væri mikilvægt skref til að stöðva skuldasöfnun og ná vaxtakostnaðinum niður.
Gjöld og tekjur ríkisins yrðu að ná saman þótt niðurskurður hefði óhjákvæmilega áhrif og ekki væru allir sáttir við þær ákvarðanir sem þyrfti að taka.
Vaxtastefnan farin að bíta í skottið á sér
Sigurjón sagði verðbólgu og verðbætur einnig raska fjárlagaáætlunum. Hann hefur verið gagnrýninn á vaxtastefnu Seðlabankans og sagði hana að sínu mati farna að bíta í skottið á sér. Burtséð frá þeirri umræðu yrði ríkið þó sjálft að sýna ábyrgð í rekstrinum og koma í veg fyrir áframhaldandi hallarekstur og skuldasöfnun.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
