
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tímabundnar efnahagsaðgerðir til að bregðast við hækkandi olíuverði vegna átaka við Persaflóa og draga úr áhrifum á heimili og fyrirtæki. Aðgerðirnar fela í sér lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, aukið verðeftirlit og fjárfestingu í hleðslustöðvum.
Virðisaukaskattur lækkaður á eldsneyti
Samkvæmt ákvörðuninni verður virðisaukaskattur á eldsneyti lækkaður tímabundið úr 24% í 11% á dælu. Markmiðið er að lækka eldsneytisverð beint til neytenda og milda áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs.
Aukið eftirlit með verðlagningu
Innleitt verður sérstakt lagaákvæði sem tryggir að verðlækkun skili sér að fullu til neytenda. Samkeppniseftirlitið fær það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmdinni. Þá verður verðlagseftirlit ASÍ styrkt um 15 milljónir króna til að fylgjast með verðþróun á dagvöru og þjónustu yfir sumartímann.
Átak í uppbyggingu hleðslustöðva
Ríkisstjórnin ætlar jafnframt að verja 500 milljónum króna í að fjölga hleðslustöðvum víðs vegar um landið. Áhersla verður lögð á uppbyggingu við fjölbýlishús og gististaði, auk þess sem stefnt er að því að tryggja samfellda aðstöðu fyrir rafbíla umhverfis landið.
Tímabundnar ráðstafanir til hausts
Aðgerðirnar eiga að taka gildi 1. maí og gilda til 31. ágúst. Lagafrumvarp vegna breytinga á virðisaukaskatti og verðeftirliti verður lagt fram á Alþingi í næstu viku, en nánari útfærsla á stuðningi við hleðslustöðvar verður kynnt á næstu dögum.
