
Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra sem gert er ráð fyrir að stöðvi verkfall flugvirkja sem hófst á miðnætti. Frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi í dag og hefur forseti Alþingis boðað þingflokksformenn til fundar vegna breytinga á dagskrá þingsins.
Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis hefur staðfest að ríkisstjórnin hafi afgreitt frumvarp Eyjólfs í morgun og að það komi fyrir þingið í dag. Flugmál heyra undir ráðuneyti Eyjólfs.
Alþingi kallað saman vegna frumvarpsins
Þingflokksformenn sitja nú á fundi vegna breytinga á dagskrá Alþingis.
Forsætisnefnd Alþingis kemur síðan saman klukkan 12:30 en nefndin heldur utan um skipulag þinghaldsins. Gert er ráð fyrir að þingfundur geti hafist að þeim fundi loknum.
Verkfall flugvirkja hófst á miðnætti eftir að ekki tókst að ná samkomulagi í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair.
Litið til frumvarps frá 2014
Við undirbúning lagasetningarinnar var litið til frumvarps sem útbúið var árið 2014 þegar verkfall flugvirkja stóð þá yfir.
Það frumvarp varð aldrei að lögum þar sem verkfallinu var aflýst áður en til þess kom.
Þar var gert ráð fyrir að bann við vinnustöðvun tæki gildi um leið og lögin en samningsaðilum yrði jafnframt gefinn frestur til að ná samkomulagi. Tækist það ekki færi kjaradeilan fyrir gerðardóm sem tæki ákvörðun um kjör flugvirkja.
Höfnuðu hugmynd flugvirkja
Flugvirkjafélagið bauðst í gær til að fresta verkfallsaðgerðum um 2 vikur gegn því að á þeim tíma færu fram markvissar og stífar samningaviðræður á grundvelli miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Icelandair hafnaði því boði.
Flugvirkjafélagið segist áfram vilja leysa deiluna við samningaborðið og vera tilbúið til viðræðna þegar vilji sé til þess hjá báðum samningsaðilum.
