
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Geir Waage, pastor emeritus í síðdegisútvarpinu um Evrópusambandið, fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og þróun stjórnmála í Evrópu. Í viðtalinu kom fram hörð gagnrýni Geirs á ríkisstjórnina sem væri þegar farin að hraða að Íslandi inn í Evrópusambandið þrátt fyrir andstöðu stórs hluta almennings. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Efast um að ríkisstjórnin hætti við ESB-áformin þrátt fyrir andstöðu þjóðarinnar
Í viðtalinu var rætt um hvort ríkisstjórnin myndi halda áfram aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu jafnvel þótt þjóðin hafnaði því í þjóðaratkvæðagreiðslu. Geir sagðist ekki telja líklegt að stjórnvöld myndu hverfa frá þeirri stefnu þó niðurstaðan yrði neikvæð. Hann sagði ríkisstjórnina þegar hafa stigið ýmis skref sem tengdu Ísland nánar Evrópusambandinu og vísaði meðal annars til samstarfsyfirlýsinga og aukinnar þátttöku Íslands í verkefnum sambandsins. Að hans mati væri þróunin komin það langt að um væri að ræða markvissa stefnu í átt að aðild.
Þá var einnig rætt um Viðreisn og Samfylkinguna sem helstu drifkrafta aðildarmálsins en Geir gagnrýndi jafnframt Flokk fólksins fyrir að styðja ríkisstjórn sem hygðist halda málinu áfram þrátt fyrir yfirlýsta fullveldissinnaða stefnu flokksins fyrir kosningar.
Reynt að kaupa almenningsálitið með styrkjum, verkefnum og boðsferðum
Í umræðunni kom einnig fram gagnrýni á fjárframlög og styrki tengda Evrópusambandinu. Geir sagði sveitarfélögum, stofnunum og félagasamtökum reglulega boðin verkefni, styrkir eða kynnisferðir tengdar Evrópusambandinu og taldi slíkt geta haft áhrif á almenningsumræðu hér á landi. Hann nefndi einnig að opinberir fjölmiðlar og ýmsar stofnanir gætu fengið fjárhagslegan stuðning vegna verkefna sem tengdust Evrópumálum. Að hans mati væri hætta á að slíkt skapaði skekkju í umræðunni þar sem þeir sem væru fylgjandi aðild hefðu sterkari fjárhagslegan bakhjarl.
Geir sagði þó að almenningur væri í vaxandi mæli farinn að efast um stefnu stjórnmálastéttarinnar í Evrópumálum og gjá milli almennings og ráðandi stjórnmálaafla færi sífellt breikkandi.
Segir pólitíska þróun í Evrópu breytast hratt
Í viðtalinu var einnig fjallað um stöðu stjórnmála í Evrópu. Geir sagði stuðning við hefðbundna stjórnmálaflokka hafa minnkað víða um álfuna og nefndi sérstaklega þróunina í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi. Andstaða við Evrópusambandið, NATO og hefðbundin stjórnmálastétt væri að aukast í mörgum ríkjum og taldi Geir sambærilega þróun vera að verða sýnilega á Íslandi. Að hans mati væru kjósendur í auknum mæli farnir að hafna flokkum sem segðu eitt fyrir kosningar en framkvæmdu annað þegar kæmi að stjórnarmyndun og stefnumótun.
Þá sagði Geir að deilan um Evrópusambandið snerist ekki aðeins um efnahagsmál heldur fyrst og fremst um fullveldi Íslands, sjálfstæði stjórnvalda og traust almennings á stjórnmálakerfinu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
