Ríkisstjórnin er búin að missa tökin

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Alexöndru Mist Halldórsdóttur, tamningakonu og skipuleggjanda mótmæla á Austurvelli, í síðdegisútvarpinu í dag, um ástæður þess að hún vill að ríkisstjórnin fari frá. Alexandra sagði stjórnarflokkana ekki hafa staðið við loforð sín, hækkanir halda áfram að dynja á fólki og ríkisstjórnina vera búna að missa tökin. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill sjá kosningar

Mótmælin voru haldin undir yfirskriftinni „Fellum þessa ríkisstjórn“ og svikin loforð eru meðal helstu ástæðna þess að Alexandra ákvað að boða til þeirra.

Hún nefndi skattahækkanir sérstaklega og sagði kílómetragjaldið í raun vera skatt. Lofað hefði verið að bensínverð lækkaði á móti en hún sæi þess í stað bæði bensín og gjöld hækka.

Einnig væru spurningar um meðferð fjármuna í utanríkismálum sem almenningur hefði ekki fengið svör við. Alexandra vill að kosið verði að nýju svo í ljós komi hvað fólki raunverulega finnist um ríkisstjórnina og störf hennar.

Heimilin finna fyrir hækkununum

Staða fólks á húsnæðismarkaði er eitt af því sem hún segir sýna hversu erfitt ástandið sé orðið. Mjög erfitt sé bæði að selja fasteignir og komast inn á leigumarkaðinn og fólk geti þurft að leggja fram meira en 1 milljón króna í tryggingu til að fá leiguhúsnæði.

Þeir sem þegar eiga húsnæði séu heldur ekki undanþegnir vandanum. Margir borgi og borgi af lánum án þess að eignast neitt að ráði í húsnæðinu á móti.

Við þetta bætist hækkandi matarverð, skattar og önnur gjöld á meðan launin fylgi ekki sömu þróun. Að hennar mati verður einhvers staðar að stöðva þetta áður en fólk fer einfaldlega á hausinn.

Ríkisstjórnin hafi fengið nægan tíma

Arnþrúður benti á að ríkisstjórnin hefði setið í tæp 2 ár og tekið við ýmsum vandamálum frá fyrri ríkisstjórn. Hún spurði hvort hún hefði í raun fengið nægan tíma til að sýna hvað hún gæti gert.

Alexandra svaraði því til að 2 ár væru talsverður tími og mikið væri hægt að gera á þeim tíma. Ríkisstjórnin hefði þegar fengið sitt tækifæri og hún nefndi einnig tilraunir hennar til að koma ESB-málinu áfram.

Arnþrúður benti þá á boðuð hallalaus fjárlög og stjórnvöld teldu sig vera að taka á efnahagsmálunum. Hún spurði hvort ekki væri eðlilegt að leyfa ríkisstjórninni að spreyta sig á því.

Alexandra sagði komið gott af ríkisstjórninni. Allt héldi áfram að hækka þrátt fyrir loforð um annað og hún sæi ekki hvernig stjórnvöld ætluðu að snúa þróuninni við. Hennar upplifun væri sú að ríkisstjórnin væri búin að missa tökin.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila