
Ríkisstofnanir vinna nú að samræmdri innleiðingu gervigreindartólsins Microsoft Copilot með það að markmiði að bæta opinbera þjónustu, auka skilvirkni í stjórnsýslunni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar. Innleiðingin er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að efla þekkingu á gervigreind, samræma notkun hennar og tryggja öryggi við meðferð gagna.
Þriggja ára samningur við Microsoft
Copilot-leyfin eru hluti af nýjum þriggja ára samningi ríkisins við Microsoft.
Að sögn stjórnvalda er innleiðingin fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og vandaðri gagna- og aðgangsstýringu.
Lögð er áhersla á að gervigreindin verði stuðningur við dagleg störf, bæti gæði vinnu og spari tíma en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.
Gögn vistuð innan Evrópu
Innleiðingin verður stigvaxandi og tekur mið af undirbúningi, þörfum og forgangsröðun einstakra stofnana.
Áður en innleiðing hefst verður farið yfir tæknilegt umhverfi, öryggismál og gagnastjórnun til að tryggja ábyrga notkun frá upphafi.
Samkvæmt stjórnvöldum tryggir samningurinn við Microsoft að öll gögn verði vistuð innan Evrópu og njóti hæsta öryggisflokks.
Fræðsla hefst í haust
Samhliða innleiðingunni verður efnt til umfangsmikillar fræðslu um notkun gervigreindar í opinberri stjórnsýslu.
Boðið verður upp á námskeið fyrir byrjendur sem og sérhæfðari fræðslu fyrir starfsfólk sem hyggst nýta gervigreind í daglegum verkefnum. Nánari upplýsingar um framkvæmd innleiðingarinnar og tímasetningar verða birtar á vef Stjórnarráðsins eftir því sem verkefninu vindur fram.
