Ritskoðun, útilokun og stimplun andstæðinga færast í aukana í Evrópu

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Björn Þorra Viktorsson, hæstaréttarlögmann í þættinum Fréttir vikunnar, um þróun stjórnmála í Evrópu, stöðu tjáningarfrelsis og vaxandi þrýsting gegn flokkum og einstaklingum sem leggja áherslu á fullveldi þjóðríkja. Umræðan snerist meðal annars um samfélagsmiðla, fjölmiðla, Evrópusambandið og þá þróun að pólitísk andstaða sé í auknum mæli meðhöndluð sem ógn við lýðræðið sjálft. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Flokkar sem verja fullveldi gerðir tortryggilegir og reynt að útiloka þá

Rætt var um stöðu AFD í Þýskalandi og hvernig flokkar sem hafna auknu valdi Brussel séu í auknum mæli stimplaðir sem varasamir eða öfga flokkar þrátt fyrir að njóta stuðnings mikils hluta kjósenda eins og raunin sé í Þýskalandi. Viðbrögðin í Brussel séu þau að reyna banna stjórnmálaþáttöku AFD og útloka flokkinn sem mælist sem stærsti flokkur Þýskalands.

Ráðist að flokkum sem vilja verja sjálfstæði ríkja

Pétur vakti athygli á því hversu sérstakt það væri að tala um að verja lýðræði með því að banna eða einangra stjórnmálaflokka. Björn Þorri tók undir það og sagði umræðuna í Evrópu hafa breyst mikið á skömmum tíma. Áður fyrr hefðu menn tekist harkalega á um stefnur og hugmyndir án þess að andstæðingar væru sjálfir skilgreindir sem vandamál sem þyrfti að uppræta. Nú væri staðan önnur. Flokkar sem leggja áherslu á þjóðerni, landamæri og sjálfstæði ríkja væru sífellt oftar settir fram sem ógn við samfélagið sjálft.

Brussel stjórnin vill banna samfélagmiðla – ritskoðun í gangi hjá ESB

Ummæli Ursulu von der Leyen, um samfélagsmiðla urðu einnig stór hluti umræðunnar. Ursula sé búin að lýsa því yfir að hún vilji banna samfélagsmiðla til þess að verja börn og ungmenni frá umræðunni þar. Arnþrúður sagði að þetta væri fyrst og fremst gert til þess að unga fólkið fengi ekki upplýsingar um hvað þau væru að gera og svo það kæmist ekki upp um þau sjálf. Þá var rætt hvernig stjórn ESB tali í auknum mæli um að herða eftirlit með upplýsingaflæði og berjast gegn „falsfréttum“ og „upplýsingaóreiðu“ sem í raun væri búið til af þeim sjálfum til þess að dreifa áróðri sínum en kenndu síðan samfélagsmiðlum um.

Takmörkun á tjáningarfrelsi í uppsiglingu

Arnþrúður benti á að þessi orð væru orðin mjög áberandi í pólitískri umræðu og þau væru oft notuð gegn fólki sem væri ósammála ríkjandi stefnu stjórnvalda. Pétur og Björn Þorri tóku í sama streng og sögðu hættuna felast í að stjórnvöld færu smám saman að skilgreina hvaða upplýsingar almenningur mætti sjá og hvaða skoðanir væru ásættanlegar. Tilraunir til takmörkunar á tjáningarfrelsi væri í uppsiglingu með þessu áframhaldi.

Þá var rætt um fjölmiðla og hvernig stór hluti vestræns fréttaflutnings byggði á sömu erlendu fréttastofunum. Afleiðingin væri sú að almenningur fengi oft mjög einsleita mynd af pólitískum átökum og þróun mála innan ESB en áberandi væri að slíkar fréttir væru sjalfgæfar á Íslandi.

COVID-tíminn ákveðinn vendipunktur

Fram kom að COVID-faraldurinn hafi verið tímabil þar sem samspil stjórnvalda, fjölmiðla og samfélagsmiðla, varð sérstaklega sýnilegt. Þar komu meðal annars upp mótmæli vörubílstjóra í Kanada og stór mótmæli bænda og almennings víða um Evrópu sem hafi fengið takmarkaða umfjöllun í meginstraumsmiðlum. Sérstaklega hafi verið harðvítug mótmæli á meðal bænda í Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi, Bretlandi og Írlandi en nánast engar fréttar hafi verið sagðar af þeim mótmælum í meginstraumsmiðlum á Íslandi.

Lögreglan greip inn í mótmæli

Þá var bent á að sama þróun eigi sér stað í Bretlandi þar sem stjórnvöld og lögregla hafa gripið til harðra aðgerða gegn fjöldamótmælum en áður hafi tíðkast í vestrænum lýðræðisríkjum. Björn Þorri lýsti því hvernig pólitísk andstaða væri í auknum mæli meðhöndluð eins og ógn fremur en eðlilegur hluti lýðræðislegrar umræðu. Að hans mati væri það stærsta breytingin sem nú sæist í Evrópu — að menn væru ekki lengur aðeins að takast á um stefnur heldur um það hvaða skoðanir fengju yfirhöfuð að heyrast opinberlega.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila