ROÐI, ungliðaheyfing Sósíalista orðið formlegt félag og ný stjórn tekin við

Ungliðahreyfing Sósíalistaflokks Íslands, ROÐI, er í fyrsta sinn orðin formlegt félag eftir aðalfund sem jafnframt var stofnfundur félagsins laugardaginn 12. september. Hátt í 50 félagar sóttu fundinn þar sem ný lög félagsins voru samþykkt og ný stjórn tók við. Stefán Örn Ingvarsson Olsen, 22 ára rafvirki, er nýr forseti ROÐA.

Lög ROÐA voru tekin til umfjöllunar á fundinum og þeim breytt samkvæmt tillögum fundarmanna. Einnig voru þau samræmd breytingum sem gerðar hafa verið á skipulagi Sósíalistaflokks Íslands.

Halldór Ólafsson, sem gegnt hafði embætti forseta ROÐA síðastliðið ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Flest embætti stjórnarinnar voru sjálfkjörin en kosið var á milli frambjóðenda um embætti ritara og alþjóða- og samskiptafulltrúa.

Stefán Örn nýr forseti ROÐA

Stefán Örn Ingvarsson Olsen er forseti nýrrar stjórnar og Þórhildur Pálsdóttir varaforseti. Axel Magnússon er ritari og Sigurður Ingi Erlends Guðbjargarson gjaldkeri.

Ragnheiður Andrésdóttir er alþjóða- og samskiptafulltrúi, Alexandra Nótt Brynjarsdóttir samfélagsmiðlafulltrúi og Marzuk Ingi Lamsiah Svanlaugar fjölmiðlafulltrúi.

Ívar Máni Hrannarson og Guðrún Þóra Sigurðardóttir eru trúnaðarfulltrúar félagsins.

Vill taka upp sósíalískt hagkerfi

Stefán Örn segir starf ungliðahreyfingarinnar hafa eflst verulega undanfarin ár og að eigin stjórnmálaskoðanir hafi þróast mikið frá því að hann gekk til liðs við flokkinn.

Hann segist hafa gengið í flokkinn sem umhverfissinni með efasemdir um stéttastjórnmál en sé nú sannfærður um að eina leiðin til að koma á umhverfisvænu og sanngjörnu samfélagi sé að taka upp sósíalískt hagkerfi.

Stefán Örn segir núverandi kerfi ekki virka, hafa aldrei virkað og munu aldrei virka. Hann segist jafnframt hafa sterkan hóp með sér sem muni berjast fyrir jöfnuði, efnahagslegu öryggi og heilbrigðari plánetu.

Fjöldi virkra ungliða hefur margfaldast

Halldór Ólafsson fráfarandi forseti segir síðasta ár hafa verið eitt það besta í sögu ungliðahreyfingarinnar þrátt fyrir að það hafi verið erfitt í sögu Sósíalistaflokksins.

Hann segir fjölda virkra ungliða hafa margfaldast og félagsfólki fjölgað verulega. ROÐI hafi jafnframt lagt sitt af mörkum til að koma Silju inn í borgarstjórn í vor og tekið þátt í baráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst.

Halldór segist ganga stoltur frá embætti eftir að hafa ásamt félögum sínum í ROÐA unnið 2 mikilvæga sigra á árinu.

Brottfararstöðvar eitt helsta baráttumálið

Ný stjórn ROÐA boðar aukna áherslu á stéttabaráttu og réttindi ungs fólks. Hún gagnrýnir áform stjórnvalda um að ná niður vöxtum, skuldum og verðbólgu með aðgerðum sem hún segir bitna á viðkvæmustu hópum samfélagsins.

Stjórnin varar sérstaklega við niðurskurði og gjaldskrárhækkunum og segir hættu á að sífellt fleiri ungmenni falli á milli skips og bryggju. Hún gagnrýnir einnig skattalega meðferð fjármagnstekna og lága gjaldtöku fyrir nýtingu sameiginlegra auðlinda.

Harðasta gagnrýnin beinist þó að svokölluðum brottfararstöðvum. Ný stjórn ROÐA kallar þær „útlendingafangelsi“ og segir baráttuna gegn þeim verða eitt brýnasta verkefni vetrarins. Stjórnin gagnrýnir sérstaklega að þar geti samkvæmt yfirlýsingu hennar bæði börn og fullorðnir verið vistuð í allt að 18 mánuði.

ROÐI leggur áherslu á að börn eigi aldrei að vera vistuð í lokuðum úrræðum og að engum skuli mismunað vegna uppruna, kynhneigðar, kyns, fötlunar eða stéttar. Hreyfingin boðar áframhaldandi baráttu fyrir auknum jöfnuði og réttindum ungs fólks.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila