Rokk í Reykjavík fékk Teit til að láta vaða í tónlistinni

Rúnar Þór ræddi við Teit Magnússon tónlistarmann í Slappaðu af um tónlistina sem mótaði hann á uppvaxtarárunum og fyrstu skrefin í tónlistinni. Teitur sagði kvikmyndina Rokk í Reykjavík hafa haft mikil áhrif á sig þegar hann sá hana í Háskólabíói í 7. eða 8. bekk. Þar hafi hann séð að ekki þyrfti allt að vera fullkomið til að byrja að semja og spila heldur skipti mestu að láta vaða. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Bítlarnir kveiktu gítaráhugann

Eldri systur Teits hlustuðu mikið á íslenska tónlist á 10. áratugnum og nefndi hann KK, Bubba Morthens og Nýdönsk meðal þeirra sem hljómuðu á heimilinu.

Bítlarnir komu síðan sterkt inn þegar Anthology vakti nýjan áhuga á sveitinni. Faðir Teits varð þá mjög spenntur og fór að kynna honum tónlist Bítlanna. Teitur nefndi Rubber Soul sérstaklega sem plötu sem hefði haft mikil áhrif á sig.

Á sama tíma hlustaði hann á allt aðra tónlist. The Prodigy og teknótónlistin sem þá var að ryðja sér til rúms hljómaði mjög framtíðarkennd og blandaðist einnig inn í það sem síðar mótaði tónlistarsmekk hans.

Tónlist var líka í fjölskyldunni þótt faðir hans léki ekki á hljóðfæri. Afi Teits hafði verið tónlistarkennari í Menntaskólanum í Reykjavík, stjórnað kór þar og farið til Vínarborgar í tónlistarnám.

Byrjaði á blokkflautu sex ára

Teitur byrjaði í tónlistarnámi á blokkflautu sex ára en það nám rann fljótlega út í sandinn. Löngunin til að læra á gítar kom síðar með Bítlaæðinu þegar hann var 9 eða 10 ára.

Þegar komið var á unglingsárin skipti félagsskapurinn síðan miklu. Hann fann aðra stráka sem léku á hljóðfæri og höfðu áhuga á að stofna hljómsveit. Úr varð bítlaskotin sveit og Teitur fór smám saman að fikra sig áfram í tónlistinni.

Þrír hljómar voru nóg til að byrja

Á sama tíma sá Teitur Rokk í Reykjavík í stóra sal Háskólabíós. Upplifunin hafði mikil áhrif.

Í kringum aldamótin fannst honum popp og rokk orðið mjög slípað og meginstraumslegt. Rokk í Reykjavík sýndi hins vegar allt annað viðhorf. Þar sá hann að hægt væri að kunna þrjá hljóma, láta í sér heyra og búa til laglínu án þess að bíða eftir því að allt yrði fullkomið. Þessi hugsun hjálpaði honum að fara af stað.

Fyrsta hljómsveitin fór síðar í Músíktilraunir. Hún komst ekki langt en reynslan skilaði Teiti tengslum við annað tónlistarfólk og það leiddi áfram í næstu hljómsveitir.

Lærir fyrst á hljóðfærið og síðan á salinn

Teitur sagði mikilvægast að byrja einfaldlega og gera sem mest. Tónlistarmaður þyrfti að spila með sem flestum og safna reynslu.

Fyrst lærði maður á hljóðfærið. Næsta skref væri að læra að spila með öðrum og loks að læra að spila fyrir salinn sjálfan og átta sig á hvaða fólk væri fyrir framan mann hverju sinni.

Fámennið á Íslandi hefði líka kennt honum að taka öllum verkefnum alvarlega. Teitur rifjaði upp að hafa einu sinni spilað með hljómsveit fyrir aðeins tvo gesti á bar á Dalvík sem var opinn í um einn mánuð.

Slík reynsla væri líka hluti af ferlinu. Tónlistarmaður þyrfti að bera virðingu fyrir öllu sem hann tæki sér fyrir hendur og ekki reyna að verða einhver annar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila