
Bandaríkin eru opin fyrir frekari viðræðum við íslensk stjórnvöld um aukið samstarf á sviði varnar- og öryggismála. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í Safnahúsinu að Ísland gegndi mikilvægu hlutverki í vörnum Atlantshafsbandalagsins vegna landfræðilegrar stöðu landsins.
Rubio svaraði þar spurningu RÚV um hvort Bandaríkin hygðust auka viðveru sína á Íslandi, til dæmis með aukinni hernaðarlegri starfsemi, eftirliti eða annarri uppbyggingu. Hann lagði áherslu á að ekkert slíkt yrði gert nema í samstarfi við íslensk stjórnvöld. press Marco Rubio press Marco Rubio
Vilji til að gera meira saman
Rubio sagði að vilji væri til þess að ríkin gerðu meira saman. Framlag Íslands fælist meðal annars í innviðum, tækni og aðstöðu til eftirlits og aukinnar yfirsýnar yfir svæðið.
Hann rifjaði upp að Bandaríkin hefðu lengi haft viðveru á Íslandi en henni hefði verið hætt árið 2006 þegar bandarískum herafla var beint að öðrum heimshlutum þar sem meiri átök og hættuástand ríktu. Aðstæður hefðu hins vegar breyst verulega á síðustu 20 árum og aukin áhersla væri nú lögð á norðurslóðir. press Marco Rubio
Ísland gegni afar mikilvægu hlutverki í vörnum NATO
Rubio sagði Ísland gegna afar mikilvægu hlutverki í vörnum NATO í heild. Landfræðileg staða Íslands skipti bæði máli fyrir varnir Evrópu og heimavarnir Bandaríkjanna.
„Við værum opin fyrir þeim samtölum um hvað við getum gert meira saman,“ sagði Rubio og bætti við að ef tækifæri kæmu upp sem væru skynsamleg fyrir bæði ríkin yrði þeim fylgt eftir. press Marco Rubio
Hann kynnti þó engar ákveðnar áætlanir um nýja bandaríska herstöð eða fasta aukningu herafla á Íslandi. Ummæli hans sneru þess í stað að frekari viðræðum og möguleikum á auknu samstarfi milli ríkjanna.
Hér fyrir neðan má horfa á upptöku frá blaðamannafundinum.
