
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Ísland og önnur ríki á norðurslóðum standi frammi fyrir beinum ógnum og að þær séu ekki eingöngu hernaðarlegs eðlis. Hann nefnir meðal annars leynilegar aðgerðir, ógnir við sæstrengi og siglingaleiðir auk efnahagslegra og viðskiptalegra ógna sem geti haft áhrif á þjóðaröryggi.
Rubio sagði þetta þegar hann svaraði spurningu Útvarps Sögu á blaðamannafundi utanríkisráðuneytisins í Safnahúsinu í Reykjavík.
Rubio var spurður að því hvort Íslandi stafaði bein hernaðarógn af Rússlandi og, ef svo væri, hvað gerði landið berskjaldað gagnvart slíkri ógn.
Áhyggjurnar beinast að norðurslóðum og heimskautasvæðinu
Rubio sagði áhyggjur ríkja beinast að þróuninni á norðurslóðum og á heimskautasvæðinu. Þar væri meðal annars horft til óreglulegra og leynilegra aðgerða, auk ógna við sæstrengi og siglingaleiðir.
„Já, það eru beinar ógnir,“ sagði Rubio. Hann bætti við að ógnir 21. aldarinnar væru ekki aðeins hernaðarlegar heldur einnig efnahagslegar og viðskiptalegar og gætu haft áhrif á þjóðaröryggi ríkja.
Nefndi ekki Rússland
Athygli vekur að þrátt fyrir að Rubio hafi verið spurður sérstaklega hvort Íslandi stafaði bein hernaðarógn af Rússlandi nefndi hann Rússland ekki sérstaklega í þessum hluta svars síns. Hann ræddi þess í stað almennt um ógnir á norðurslóðum og sagði að við þeim þyrfti að bregðast sameiginlega með bandalags- og samstarfsríkjum.
Ísland gegnir mikilvægu hlutverki
Rubio sagði að Ísland væri mikilvægur þáttur í samstarfi ríkja á norðurslóðum og að löng saga væri fyrir samstarfi Íslands og Bandaríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála.
Hann sagði jafnframt að landfræðileg staða Íslands gerði landið sérstaklega mikilvægt fyrir varnir Atlantshafsbandalagsins. Ísland gegndi mikilvægu hlutverki bæði í vörnum Evrópu og Bandaríkjanna og Bandaríkin væru opin fyrir viðræðum um hvað ríkin gætu gert meira saman á sviði öryggis og varna
Hér að neðan má sjá upptöku frá blaðamannafundinum.
