
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að hefðbundinn fríverslunarsamningur við Ísland sé ekki líklegur á næstunni. Hann segir hins vegar raunhæf tækifæri felast í tvíhliða og gagnkvæmu viðskiptasamkomulagi milli Íslands og Bandaríkjanna.
Rubio sagði þetta á blaðamannafundi utanríkisráðuneytisins í Safnahúsinu þegar Andrés Magnússon, fyrir hönd Morgunblaðsins og Vísis, spurði hann meðal annars hvort Bandaríkin væru tilbúin að skoða fríverslunarsamning við Ísland. press Marco Rubio
Segir þetta ekki sérstaklega snúa að Íslandi
Rubio sagði að tímabil nýrra fríverslunarsamninga væri að hans mati líklega ekki fram undan í fyrirsjáanlegri framtíð. Hann tók þó sérstaklega fram að sú afstaða beindist ekki að Íslandi heldur væri um almenna stefnu að ræða.
Hann sagði hins vegar að raunveruleg tækifæri væru til staðar fyrir tvíhliða samkomulag um viðskipti milli ríkjanna, byggt á gagnkvæmni.
Rubio sagði jafnframt að samkvæmt hans upplýsingum væri þegar unnið að því að skipuleggja fundi þar sem slíkt samstarf yrði rætt og að sú vinna hefði verið hafin áður en hann kom til Íslands. press Marco Rubio
Vill tengja fyrirtæki ríkjanna betur saman
Rubio lagði einnig áherslu á aukið atvinnu- og fjárfestingarsamstarf. Hann sagði íslensk fyrirtæki starfa á sérhæfðum sviðum, meðal annars í lyfjaiðnaði og líftækni, þar sem tækifæri væru til vaxtar á bandarískum markaði.
Sem áþreifanlegt framhald heimsóknarinnar vill hann að bandarísk fyrirtæki komi til Íslands til að kanna fjárfestingartækifæri og að íslensk fyrirtæki fari sömuleiðis til Bandaríkjanna til að skoða markaði og fjárfestingar þar. press Marco Rubio
Rubio sagði stjórnvöld og sendiráð ríkjanna geta gegnt hlutverki við að tengja fyrirtæki saman og skapa þannig aukin viðskiptatækifæri.
Viðskipti voru meðal þeirra mála sem utanríkisráðuneytið hafði fyrir heimsóknina sagt vega þungt í samskiptum Íslands og Bandaríkjanna.
