Rúm 93% treysta ekki upplýsingum frá ríkisstjórninni í ESB málum

Afgerandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segjast ekki treysta upplýsingum frá ríkisstjórninni í ESB-málum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Treystir þú upplýsingum frá ríkisstjórninni í ESB málum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 93,62%

Já: 6,38%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila