Rúmlega hálfum milljarði úthlutað til uppbyggingar ferðamannastaða

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði í fyrir helgi úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Að þessu sinni hljóta 29 verkefni styrk úr sjóðnum, samtals að fjárhæð 538,7 milljónir króna, og dreifast þau um land allt.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða starfar samkvæmt lögum nr. 75/2011 og er markmið sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun. Líkt og undanfarin ár þá snúa verkefnin sem hljóta styrk í ár að fjölbreyttri uppbyggingu um land allt, m.a. á sviði öryggismála, náttúruverndar, innviðauppbyggingar o.fl. Mörg verkefnanna eru skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis og eru unnar á forsendum heimafólks.

„Styrkirnir í ár fara til verkefna hringinn í kringum landið, stórra sem smárra, sem öll skipta máli. Uppbyggingin er í samræmi við nýja ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 sem ég hef lagt fyrir Alþingi og er grundvölluð á heildarsýn fyrir hvern landshluta, meðal annars í gegnum áfangastaðaáætlanir heimamanna. Með þessum stuðningi erum við að stuðla að betri upplifun og aðgengi ferðamanna, auknu öryggi og verndun viðkvæmrar náttúru landsins. Þetta eru lykilatrið í sjálfbærni íslenskrar ferðaþjónustu sem er leiðarljós okkar,“ segir ráðherra.

Stuðlagil og Múlagljúfur hljóta hæstu styrkina í ár

Tveir hæstu styrkirnir í ár eru að upphæð 90 milljónir króna hvor, og fara þeir annars vegar til áframhaldandi uppbyggingar við Stuðlagil á Austurlandi og hins vegar til uppbyggingar gönguleiðar og áningarstaðar á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar við Múlagljúfur á Suðurlandi. Þriðji hæsti styrkurinn, rúmar 52 milljónir króna, fer til Vesturlands, þar sem um er að ræða uppbyggingu áningarstaðar með aðgengi fyrir alla við Kúalaug í Reykhólahreppi.

Sýnilegur árangur af starfi sjóðsins

Þótt hér hafi að framan verið tilgreind þau verkefni sem hljóta hæstu styrkina þá eru minni styrkir oft á tíðum ekki síður mikilvægir þeim sem þá hljóta og geta skipt sköpum við uppbygginu svæða og nýrra segla á sviði ferðaþjónustu.

„Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur valdið straumhvörfum í uppbyggingu ferðamannastaða undanfarin ár. Frá árinu 2012 hafa yfir 900 verkefni hlotið styrk úr sjóðnum fyrir samtals 7,7 milljarða króna. Er hér um skynsamlegar fjárfestingar til lengri tíma að ræða, sem treysta undirstöður ferðaþjónustunnar sem lykilatvinnugrein þegar kemur að verðmæta- og gjaldeyrissköpun fyrir þjóðarbúið,“ segir ráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila