
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ingvar Smára Birgisson, lögmann hjá Firma lögmönnum og stjórnarmann RÚV, í síðdegisútvarpinu í dag, um hlutverk RÚV í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Ingvar sagði mikilvægt að ríkisfjölmiðillinn stæði undir lögbundinni hlutleysis- og óhlutdrægnisskyldu á sama tíma og umræða um umfjöllun RÚV hefði orðið sífellt háværari. RÚV hefði fengið stóra peningaupphæð frá Evrópusambandinu á síðasta ári og það væri tortryggni á meðal þjóðarinnar vegna þess. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Stjórn RÚV stýrir ekki fréttaflutningi
Pétur spurði hvernig tryggt væri að RÚV gætti hlutleysis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og hvort stjórn miðilsins hefði þar hlutverk, þar sem RÚV væri opinbert hlutafélag ( ohf).
Ingvar sagði stjórnina hafa eftirlit með rekstri RÚV en ekki daglegum ritstjórnarákvörðunum. Hún gæti komið almennum athugasemdum á framfæri við útvarpsstjóra en hefði hvorki heimildir til að velja fréttir né hafa áhrif á umfjöllun um einstök mál.
Opin gagnrýni mikilvægasta aðhaldið
Ingvar sagði öflugasta aðhaldið felast í opinni umræðu og gagnrýni frá almenningi. Hann hefði sjálfur gagnrýnt umfjöllun RÚV þegar honum þætti ákveðin sjónarmið fá meira vægi en önnur.
Pétur benti á að skoðanir fréttamanna gætu haft áhrif á fréttamat og Ingvar tók undir að þótt starfsfólk ynni af heilindum gæti sýn þess á hvað teldist fréttnæmt verið ólík.
Mikil ábyrgð þegar margir eru óákveðnir
Í umræðunni var vísað til Gallup-könnunar sem sýndi að stór hópur kjósenda væri enn óákveðinn. Pétur sagði því skipta miklu hvernig RÚV sinnti umfjöllun sinni á lokasprettinum fyrir atkvæðagreiðsluna.
Ingvar sagði RÚV njóta mikils trausts meðal landsmanna og því væri sérstaklega mikilvægt að umfjöllunin væri vönduð og gætti jafnræðis milli ólíkra sjónarmiða.
Gagnrýndi ESB-styrki til RÚV
Pétur spurði einnig um styrki sem RÚV hefði fengið frá Evrópusambandinu.
Ingvar sagði hann hafa gagnrýnt þá ákvörðun innan stjórnar RÚV þar sem slík fjármögnun gæti dregið úr trúverðugleika ríkisfjölmiðilsins í umfjöllun um Evrópusambandið. Styrkurinn hefði komið frá Evrópusambandinu og ætlaður til umfjöllunar um loftlagsmál. Hann sagði sömu sjónarmið eiga að gilda óháð því hvort fjármagnið kæmi frá Evrópusambandinu eða öðrum ríkjum. Styrkir frá erlendum aðilum ættu ekki viðgangast hjá ríkisfjölmiðli.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
