
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing, í síðdegisútvarpinu í dag, um Bandero-málið, viðbrögð íslenskra stjórnvalda og umfjöllun fjölmiðla um aðgerðir skipsins. Guðmundur taldi of mikil áhersla hefði verið lögð á aðstæður áhafnar Bandero og þar hefði RÚV farið fremst í flokki sem væri hneyksli því áhöfnin væri hreinir glæpamenn með framferði sínu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Öryggi sjómanna og sérsveitarinnar fékk of litla athygli
Arnþrúður benti á þá hættu sem íslenskir sjómenn, landhelgisgæslan, lögreglumenn og sérsveitarmenn stóðu frammi fyrir þegar skipið var stöðvað en það hefði lítið farið fyrir umfjöllun um þá lífhættu sem þeir aðilar hefðu verið í.
Hún ræddi um hvernig fjallað hefði verið um áhöfn Bandero skipsins, dag eftir dag en ekki spurt hvort nægileg áhersla hefði verið lögð á öryggi þeirra sem komu að aðgerðunum á sjó.
Guðmundur gagnrýndi umfjöllun Ríkisútvarpsins og sagði hana fyrst og fremst hafa beinst að aðstæðum áhafnar skipsins. Hann var sammála um að sú áhersla hefði dregið athyglina frá þeirri hættu sem íslenskir sjómenn, lögreglumenn og sérsveitarmenn tóku á sig við framkvæmd aðgerðanna.
Senda þarf skýr skilaboð
Arnþrúður benti á að niðurstaða málsins myndi einnig senda skilaboð út fyrir landsteinana og vísaði til viðbragða Færeyinga við sambærilegum aðgerðum gegn aktivistum sem ætluðu sér að stöðva hvalveiðar Færeyinga. Hún spurði hvort Ísland ætti með sama hætti að senda frá sér skýr skilaboð til þeirra sem ætluðu sér að ráðast að löglegum hvalveiðum við Ísland.
Guðmundur sagði brottvísun áhafnarinnar og endurkomubann samræmast íslenskum lögum ef menn brytu lög hér á landi. Hann lagði jafnframt áherslu á að stjórnvöld sýndu með skýrum hætti að íslensk lög giltu jafnt gagnvart erlendum mótmælendum sem öðrum.
Mótmælin ná til fleiri atvinnugreina
Guðmundur rifjaði upp innbrot og aðgerðir gegn minkabúinu í Mosfellsdal og benti á að mótmæli dýraverndarsinna hefðu í auknum mæli beinst að fleiri atvinnugreinum en hvalveiðum. Þar mætti nefna innbrot og skemmdarverk í svínabú og eggjabú.
Guðmundur taldi að þar birtist sama þróun og í Bandero-málinu. Hann sagði aðgerðirnar beinast að hefðbundnum íslenskum atvinnugreinum sem byggðu á nýtingu dýra og velti því upp hvort sambærileg sjónarmið gætu síðar náð til fleiri veiða, eins og til dæmis þorskveiða. Jafnframt sagði hann reglur og hugmyndir sem ættu uppruna sinn erlendis ekki alltaf samrýmast íslenskri menningu, atvinnuháttum og hefðum.
Arnþrúður benti á að nú þegar væri verið að ýta undir þessa þróun og meðal annars væri byrjað að framleiða gerviþorsk til manneldis.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
