
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Frosta Sigurjónsson, rekstrarhagfræðing og fyrrverandi alþingismann, í síðdegisútvarpinu, um Landsvirkjun, mögulega einkavæðingu og verðmæti fyrirtækisins fyrir komandi kynslóðir. Frosti kallaði Landsvirkjun sannkallaða gullgæs og sagði þann sem kæmist yfir fyrirtækið í einkaeigu geta gert „díl aldarinnar“ á kostnað þeirra sem eftir okkur koma.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Landsvirkjun getur skilað arði í áratugi
Pétur spurði hvort hætta væri á að byrjað yrði að hluta Landsvirkjun upp og selja eignarhluti smám saman.
Frosti svaraði að það væri freistandi fyrir þá sem sæju fyrst og fremst gróðatækifæri í fyrirtækinu. Landsvirkjun væri nú í eigu þjóðarinnar og gæti skilað arði í mjög langan tíma.
Hann sagði slíkt fyrirtæki geta skilað tekjum í hundrað ár eða lengur og því væri varasamt að meta það eingöngu út frá þeirri aðferð sem einkafjárfestar notuðu við kaup.
Núvirðið vanmetur eign framtíðarkynslóða
Frosti útskýrði að við sölu langlífra fyrirtækja væri verðmætið gjarnan reiknað út frá núvirði. Tekjur langt fram í tímann væru þá færðar til núvirðis og eftir nokkra áratugi yrðu þær nánast verðlausar í útreikningnum.
Það hentaði fjárfesti með takmarkaðan líftíma en ekki samfélagi sem ætti fyrirtæki til framtíðar.
Frosti sagði samfélag ekki eiga að selja gullgæs sem gæti lifað í 150 ár fyrir verð sem byggðist að mestu á hagnaði næstu áratuga. Með því væri verið að taka eign frá komandi kynslóðum og færa hana öðrum.
Lífeyrissjóðir gætu orðið leiðin inn
Pétur spurði hvort mögulegt væri að byrja á því að láta lífeyrissjóði kaupa lítinn hlut í Landsvirkjun og auka síðan einkaeign smám saman.
Frosti sagði þá sem vildu koma fyrirtækinu í einkaeigu nota þá leið sem stæði til boða.
Hann lagði áherslu á að Landsvirkjun væri skuldlaus og verðmæt eign sem gæti skilað samfélaginu tekjum langt inn í framtíðina.
Barnabörnin missa tekjurnar
Frosti sagði kaupanda Landsvirkjunar geta gert „díl aldarinnar“ en að komandi kynslóðir bæru kostnaðinn.
Þær kynslóðir sem lifðu við söluna gætu talið sig fá gott verð en barnabörnin myndu missa bæði eignina og framtíðartekjurnar. Hann nefndi að slík gullgæs gæti annars skilað samfélaginu um 20 milljörðum króna á ári sem nýst gætu til innviða, spítala og heilsugæslu.
Því mætti ekki selja Landsvirkjun. Ef eitthvað í EES-regluverkinu knýði Ísland í þá átt ætti að hans mati að taka slíkar reglur úr gildi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
