Sameining Háskólans á Hólum við HÍ vanhugsuð áætlun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og fyrrum rektor Landbúnaðarháskólans á Hólum í Hjaltadal í síðdegisútvarpinu, um frumvarp stjórnvalda sem gerir ráð fyrir að Háskólinn á Hólum verði lagður niður sem sjálfstæð stofnun og sameinaður Háskóla Íslands. Jón sagði frumvarpið bera skýr merki metnaðarleysis stjórnvalda gagnvart Hólum og íslenskri menningarsögu og taldi breytingarnar illa undirbúnar og vanhugsaðar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Frumvarpið byggt á hagræðingu fremur en framtíðarsýn

Jón sagði að með frumvarpinu væri verið að leggja niður sjálfstæði Háskólans á Hólum, án þess að skýr framtíðarsýn lægi fyrir um starfsemina. Hann sagði að hvorki hefði verið kynnt raunhæf útfærsla á áframhaldandi kennslu, né skýr fjárhagsáætlun um hvernig breytingarnar yrðu framkvæmdar. Að hans mati bæri frumvarpið fyrst og fremst merki þess að stjórnvöld vildu fækka stofnunum og miðstýra stjórnsýslu ríkisins. Hann sagði að slíkt gæti hentað á blaði í Reykjavík en tæki ekki mið af raunverulegri stöðu Hóla eða þeirri sérhæfðu starfsemi sem þar hefði verið byggð upp í áratugi.

Jón sagði að það væri sérstaklega alvarlegt að leggja niður sjálfstæðan skóla sem byggðist á verklegri kennslu, rannsóknum og staðbundinni sérþekkingu, án þess að ljóst væri hvað tæki við.

Gagnrýnir sundraða ábyrgð ríkisins

Í viðtalinu gagnrýndi Jón einnig hvernig ábyrgð á Hólum hefði verið skipt milli stofnana og ráðuneyta undanfarin ár. Hann sagði að það hefði leitt til þess að enginn bæri raunverulega ábyrgð á heildinni, hvorki húsunum né starfseminni. Hann sagði að þegar hann tók við skólanum árið 1981 hefði ríkið tekið skýra ákvörðun um að byggja Hóla upp. Þá hefði verið ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir, hús endurnýjuð og skólastarfið eflt markvisst með stuðningi stjórnvalda.

Nú væri staðan önnur. Jón sagði að mörg hús staðarins hefðu ekki fengið viðhald árum saman og að skólabyggingarnar bæru þess merki. Hann sagði að stjórnvöld hefðu látið staðinn drabbast niður og væru nú að nota það sem rök fyrir breytingunum.

Óttast að starfsemin verði smám saman flutt frá Hólum

Jón sagði að þótt stjórnvöld fullyrtu að starfsemi yrði áfram á Hólum fæli frumvarpið í sér að stjórnun, eignir og ábyrgð yrðu færð til Háskóla Íslands. Hann sagðist óttast að það yrði fyrsta skrefið í því að færa starfsemina smám saman frá staðnum. Hann benti á að samkvæmt frumvarpinu, yrði kennitala skólans lögð niður, rektorsembættið afnumið og námið fært undir Háskóla Íslands. Að hans mati væri þar með verið að leggja niður sjálfstæða stofnun þó öðru væri haldið fram.

Jón sagði einnig að það vekti sérstaka athygli að Háskóli Íslands hefði sjálfur lýst yfir efasemdum um að taka ábyrgð á fasteignum staðarins. Það sýndi að frumvarpið væri ekki fullmótað og að ýmsir lykilþættir væru enn óútfærðir.

Hólar eiga að vera stolt þjóðarinnar

Í þættinum benti Jón á að Hólar væru ekki aðeins skóli heldur einn mikilvægasti menningar-menntunar og sögustaður þjóðarinnar. Hann sagði að stjórnvöld ættu að nálgast staðinn af metnaði og virðingu, í stað þess að líta á hann sem rekstrarvandamál. Að hans mati væri hægt að efla starfsemina enn frekar með skýrum vilja stjórnvalda, líkt og gert var á níunda áratugnum þegar ákveðið var að byggja Hóla upp á ný. Hann sagði að nú væri aftur á móti farin sú leið að veikja grunn starfseminnar í nafni hagræðingar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila