
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi hafa lagt fram 11 breytingartillögur við fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2027 sem miða að því að auka þjónustu við íbúa án þess að auka heildarútgjöld bæjarsjóðs. Flokkurinn vill meðal annars takmarka yfirvinnu í miðlægri stjórnsýslu og draga úr kaupum á spjaldtölvum fyrir grunnskólabörn. Með þessum aðgerðum telur Samfylkingin að spara megi tæpar 219 milljónir króna á ári.
Í fréttatilkynningu flokksins kemur fram að sparnaðinum verði varið til að auka systkinaafslátt í leikskólum, efla frístundaþjónustu, lengja opnunartíma Kópavogslaugar og bæta þjónustu við börn og eldri borgara. Hluta fjárins verði jafnframt varið til að greiða niður skammtímaskuldir bæjarins.
Vill setja þak á yfirvinnu í stjórnsýslunni
Stærsti einstaki sparnaðarliðurinn felst í því að takmarka yfirvinnugreiðslur í miðlægri stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Samfylkingin áætlar að með hóflegu þaki á yfirvinnu megi spara 169,5 milljónir króna á ári.
Flokkurinn telur að margt bendi til þess að yfirvinna sé orðin fastur hluti launakjara starfsmanna stjórnsýslunnar fremur en greiðslur vegna tímabundins álags.
Í tilkynningunni er lögð áhersla á að starfsemi stjórnsýslunnar eigi almennt að rúmast innan hefðbundins vinnutíma og að sveitarfélagið eigi ekki að leiða launaþróun með föstum yfirvinnugreiðslum umfram kjarasamninga.
Yngsta stig grunnskólanna verði án snjalltækja
Samfylkingin leggur einnig til að yngsta stig grunnskóla Kópavogs verði snjalltækjalaust og að kaup á nýjum spjaldtölvum og öðrum tölvubúnaði verði dregin saman um rúman helming.
Áætlaður sparnaður af breytingunni er 49,2 milljónir króna á næsta ári.
Flokkurinn telur ekki forsvaranlegt að halda áfram að útvega öllum grunnskólabörnum spjaldtölvur þegar vísbendingar séu um að mikil skjánotkun geti haft neikvæð áhrif á nám yngri barna.
Aukinn systkinaafsláttur og sumarfrístund í fleiri skólum
Með sparnaðinum vill Samfylkingin fjármagna ýmsar breytingar á þjónustu bæjarins.
Lagt er til að systkinaafsláttur í leikskólum hækki úr 50% í 75%, sem myndi kosta bæjarsjóð 25,3 milljónir króna á ári.
Þá vill flokkurinn fjölga þeim grunnskólum sem bjóða upp á sumarfrístund úr tveimur í fimm. Áætlaður kostnaður við þá breytingu er 16 milljónir króna.
Einnig er lagt til að lengja opnunartíma Kópavogslaugar fyrir 14,9 milljónir króna og verja 9 milljónum króna til kaupa á fleiri bókum fyrir skólabókasöfn.
Framlag til Lista- og menningarsjóðs Kópavogs yrði jafnframt aukið um 6 milljónir króna.
Vill efla barnavernd og vinna gegn einangrun eldri borgara
Samfylkingin leggur til að 32 milljónum króna verði varið til að ráða tvo ráðgjafa til starfa í barna- og fjölskylduteymi velferðarsviðs og í barnavernd.
Markmiðið er að styrkja þjónustu við börn og fjölskyldur sem þurfa á stuðningi að halda.
Jafnframt vill flokkurinn verja 20 milljónum króna til aðgerða gegn félagslegri einangrun eldri borgara í Kópavogi.
Þá er lagt til að 10 milljónir króna fari í aukna trjáplöntun í hverfum bæjarins.
Afgangurinn fari í niðurgreiðslu skulda
Samfylkingin vill að það fé sem eftir stendur að lokinni fjármögnun þjónustuaukningarinnar verði nýtt til að greiða niður skammtímaskuldir Kópavogsbæjar.
Samkvæmt tillögunum er gert ráð fyrir að hægt verði að verja 85,5 milljónum króna til þess.
Flokkurinn gagnrýnir að Kópavogsbær hafi undanfarin ár reitt sig um of á yfirdráttarlán til að standa undir skammtímaskuldbindingum.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar telja að með breyttri forgangsröðun sé hægt að bæta þjónustu við íbúa, draga úr skuldum og halda aftur af útgjöldum án þess að auka fjárhagslegar byrðar bæjarsjóðs.
