Sammála um leikskólavandann en ósammála um úrbætur

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur, sem skipar 3. sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík og Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur, sem skipar 6. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í síðdegisútvarpinu um leikskólamál, manneklu og hugmyndir um heimgreiðslur til foreldra. Þar kom fram að báðir flokkar telja stöðu leikskóla í Reykjavík alvarlega en eru ósammála um hvernig leysa eigi vandann og hvort sveitarfélagið eigi að greiða foreldrum fyrir að vera heima með börn sín. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Mannekla og viðhaldsvandi í leikskólum

Steinunn sagði leikskólastigið standa frammi fyrir bæði manneklu og viðhaldsvanda í húsnæði borgarinnar. Hún sagði Reykjavík, líkt og önnur sveitarfélög, hafa misst marga leikskólakennara úr starfi og rekstrarvandi og álag hefðu haft áhrif á mönnun leikskóla. Hún sagði Samfylkinguna vilja lögfesta rétt barna til leikskólavistar eftir að fæðingarorlofi lýkur með sambærilegum hætti og grunnskólaskylda er tryggð í dag. Markmiðið væri að ríkið tæki meiri þátt í rekstri leikskóla og að aukið fjármagn gæti styrkt bæði mönnun og starfsaðstæður.

Steinunn sagði einnig að Reykjavík þyrfti að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir vegna rakaskemmda og viðhalds sem hefði setið á hakanum árum saman.

Sjálfstæðisflokkurinn vill fleiri valkosti

Guðný María sagði að Reykjavík hefði ekki náð að leysa leikskólavandann þrátt fyrir margra ára loforð. Hún nefndi meðal annars tafir á framkvæmdum við Brákarborg og sagði borgina þurfa að fara í fjölbreyttari lausnir. Sjálfstæðisflokkurinn vill meðal annars styrkja dagforeldrakerfið, heimila fyrirtækjum að reka eigin leikskóla og bjóða foreldrum heimgreiðslur ef þeir kjósa að vera lengur heima með börn sín. Guðný María sagði slíkar leiðir geta minnkað þrýsting á biðlista og aukið valfrelsi fjölskyldna.

Hún sagði einnig mikilvægt að staðla hönnun leikskóla betur og stytta framkvæmdatíma við byggingu nýrra leikskóla.

Deilt um áhrif heimgreiðslna

Steinunn sagði Samfylkinguna andvíga heimgreiðslum þar sem reynsla frá Norðurlöndum sýndi að konur væru mun líklegri til að nýta sér slíkar greiðslur en karlar. Hún sagði það geta haft áhrif á stöðu kvenna á vinnumarkaði og styrkt gamlar hugmyndir um kynjahlutverk.

Guðný María sagði hins vegar að mikilvægt væri að virða valfrelsi foreldra og sumar fjölskyldur vildu sjálfar hafa börn sín heima fyrstu árin. Hún sagði að núverandi staða sýndi að borgin hefði ekki náð að tryggja nægilega mörg leikskólapláss og því þyrfti að skoða fleiri leiðir samhliða uppbyggingu leikskóla.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila