Samnings- og verkfallsréttur myndi skerðast við ESB-aðild

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar í síðdegisútvarpinu um áhrif ESB-aðildar og evruupptöku á íslenska kjarasamningskerfið. Sólveig Anna sagði að kerfinu yrði komið í þær skorður sem myndi draga úr samningsfrelsi, verkfallsrétti og pólitískum áhrifum verkalýðshreyfingarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Launaþróunin ákveðin miðlægt

Aðspurð hvernig samningsréttur stéttarfélaga myndi breytast sagði Sólveig að breytingarnar yrðu ekki samstundis. Evruupptaka kallaði þó á aukinn aga á vinnumarkaði og líklega sameiginlegt kerfi þar sem svigrúm útflutningsgreinanna til launahækkana yrði metið fyrirfram. Síðan yrði ákveðið viðmið sem aðilar vinnumarkaðarins ættu að fylgja.

Sólveig tók fram að íslenska kjarasamningskerfið væri ekki fullkomið. Frelsi launafólks til að semja um eigin kjör væri þó mikilvægt lýðræðislegt réttindi sem nyti lagalegrar verndar.

Verkfallsréttur og pólitísk áhrif

Pétur spurði hvort Alþingi gæti áfram sett sjálfstæða vinnulöggjöf við inngöngu í ESB. Sólveig svaraði að breytingar á vinnumarkaðskerfinu kölluðu meðal annars á endurskoðun laga um stéttarfélög og vinnudeilur frá 1938.

Hún sagði hluta stjórnmála- og efnahagslífsins þegar vilja auka heimildir ríkissáttasemjara. Slík þróun gæti takmarkað rétt félagsmanna til að móta eigin kröfur og ákveða hvenær vinnuaflinu yrði beitt.

Aðspurð hvort verkalýðshreyfingin myndi missa pólitísk áhrif ef stærri hluti löggjafarinnar kæmi frá ESB sagði Sólveig að áhrifin myndu minnka verulega. Stéttarfélög gætu nú haft bein áhrif á stjórnvöld sem kæmu gjarnan að gerð stórra kjarasamninga með fjármuni og aðrar aðgerðir.

Lágmarkslaun og evrópskir dómar

Sólveig sagði lágmarkslaun á Íslandi ráðast af kjarasamningum en ekki ákvörðun Alþingis. Hún óttaðist að lágmarkslaunatilskipun ESB og minnkandi stéttarfélagsaðild gætu smám saman grafið undan valdi félaganna til að semja um laun.

Pétur spurði einnig um Laval- og Viking Line-dóma Evrópudómstólsins þar sem tekist var á um verkfallsrétt og atvinnufrelsi og niðurstaðan hefði sýnt að greinilega væri verið að draga úr réttindum launafólks. Sólveig sagðist hafa fengið ítarlegt minnisblað frá lögmanni um dómsniðurstöðuna sem stjórn Eflingar hygðist fara yfir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila