
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Pawel Bartoszek, þingmann Viðreisnar og formann utanríkismálanefndar, í síðdegisútvarpinu um samningsmarkmið Íslands í hugsanlegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Pawel sagði Ísland myndi sækja um fulla aðild en hagsmunir landsins yrðu tryggðir með skýrum samningsmarkmiðum sem samningamenn hefðu að leiðarljósi í viðræðunum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Samningsmarkmiðin skilgreini hagsmuni Íslands
Arnþrúður benti á að þegar sótt var um aðild árið 2009 hefði Alþingi jafnframt samþykkt fyrirvara og svokallaðar rauðar línur sem ekki hefðu fylgt umsókninni sjálfri þegar á reyndi. Hún spurði hvort samskonar nálgun yrði höfð að leiðarljósi ef þjóðin segði já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst n.k.,
Pawel sagði mikilvægt að greina á milli aðildarumsóknarinnar sjálfrar og þeirra markmiða sem íslensk stjórnvöld settu samningafólki sínu. Að hans sögn sæki ríki alltaf um fulla aðild en samningsmarkmiðin skilgreindu hvaða niðurstöðu Ísland stefndi að í einstökum málaflokkum.
Áherslur verði áfram á landbúnað og sjávarútveg
Þá var vikið að þeim málaflokkum sem helst hefðu verið til umræðu í fyrri aðildarviðræðum. Pawel sagði meirihlutaálit utanríkismálanefndar fela í sér ítarleg samningsmarkmið um meðal annars landbúnað, sjávarútveg, innflutning lifandi dýra og fleiri mál sem skiptu Ísland miklu máli.
Hann sagði þessi markmið vera leiðarvísi fyrir íslenska samningamenn og þau myndu áfram móta afstöðu Íslands ef viðræður hæfust á ný.
Ekkert samþykkt nema niðurstaðan sé ásættanleg
Arnþrúður spurði hvort Ísland gæti hafnað niðurstöðu viðræðna ef samningurinn stæðist ekki þær kröfur sem lagðar yrðu til grundvallar.
Pawel sagði tilgang samningsmarkmiðanna vera að ná sem hagstæðastri niðurstöðu fyrir Ísland en ekkert yrði samþykkt nema niðurstaðan teldist ásættanleg. Aðspurður sagði Pawel að það mætti kalla rauðar línur að Íslands hálfu. Að loknum viðræðum yrði það síðan þjóðarinnar að taka afstöðu til samningsins í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
