
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins í síðdegisútvarpinu í dag, um vinnubrögð utanríkismálanefndar Alþingis við meðferð máls um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið. Hún sagði að samráðsleysi, leynd og takmörkuð upplýsingagjöf frá ríkisstjórninni hefðu einkennt málið frá upphafi. Þá gagnrýndi hún að minnihlutanum í nefndinni hefði ítrekað verið synjað um frekari upplýsingar og gestakomur þrátt fyrir umfang málsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fundir felldir niður og spurningum hafnað
Diljá sagði vinnubrögð utanríkismálanefndar vera gjörólík því sem áður hefði tíðkast. Hún sagði að upplýsingabeiðnum minnihlutans væri ýtt á milli funda þar til þeim væri hafnað og fyrirfram ákveðinn fundartími nefndarinnar hefði verið felldur niður á sama tíma og kallað var eftir frekari svörum frá sérfræðingum og ráðuneytum.
Hún benti á að sjö fundir hefðu verið haldnir um þjóðaratkvæðagreiðsluna á meðan 11 fundir hefðu áður farið í breytingar á útlendingalögum. Að hennar mati sýndi það að verið væri að hraða málinu áfram án fullnægjandi umræðu.
Takmarkaðar upplýsingar um samskipti við ESB
Í viðtalinu gagnrýndi Diljá einnig að utanríkismálanefnd hefði ekki fengið efnislegar upplýsingar um samskipti íslenskra ráðherra við Evrópusambandið. Hún sagði nefndina aðeins hafa fengið afhent stutt fundayfirlit og tímasetningar vegna funda með Ursula von der Leyen og öðrum fulltrúum Evrópusambandsins.
Að hennar mati væri verið að halda mikilvægum upplýsingum frá Alþingi á sama tíma og ríkisstjórnin ynni að áframhaldandi vegferð Íslands í átt að Evrópusambandinu.
Segir fyrirfram ákveðið að hraða málinu áfram
Diljá sagði að afgreiðsla málsins bæri skýr merki þess að fyrirfram ákveðið hefði verið að klára það á skömmum tíma. Hún rifjaði upp að formaður utanríkismálanefndar hefði þegar í mars lagt fram tímasetta áætlun um meðferð málsins og henni væri fylgt þrátt fyrir nýjar athugasemdir og ófullnægjandi svör frá ráðuneytum.
Hún sagði að meirihlutinn hefði ekki sýnt vilja til að hægja á málinu þrátt fyrir að Landskjörstjórn hefði bent á vandamál við framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
