Samræmd viðmið tekin upp til að bregðast fyrr við skólaforðun

Mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst innleiða samræmd landsviðmið um skólasókn grunnskólanemenda frá og með skólaárinu 2026–2027. Markmiðið er að grunnskólar um land allt skrái og bregðist við ófullnægjandi skólasókn með sama hætti, þannig að auðveldara verði að grípa inn í þegar merki um skólaforðun koma fram. Þetta segir í tilkynningu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Börn fái stuðning óháð búsetu

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir mikilvægt að börn fái stuðning óháð því í hvaða sveitarfélagi þau búi. Hún segir samræmd viðmið eiga að tryggja skólum skýrari verkfæri, foreldrum meiri fyrirsjáanleika og börnum betri möguleika á að fá viðeigandi aðstoð áður en vandinn verður umfangsmeiri.

Ólík kerfi sveitarfélaga samræmd

Í dag hafa mörg sveitarfélög þróað eigin kerfi til að fylgjast með skólasókn og bregðast við skólaforðun, en framkvæmdin er mismunandi eftir landshlutum. Sveitarfélög hafa kallað eftir sameiginlegum viðmiðum til að auðvelda samanburð og skapa betri yfirsýn yfir þróun mála á landsvísu.

Fyrstu viðbrögð innan skólans

Samræmdu viðmiðin gera ráð fyrir að fyrstu viðbrögð fari fram innan skólans með samtali við nemanda og foreldra. Ef skólasókn heldur áfram að versna getur komið til aðkomu skólaþjónustu, félagsþjónustu, barnaverndar eða annarra sérhæfðra þjónustuaðila eftir því sem við á.

Þar með er gengið út frá því að ófullnægjandi skólasókn geti verið bæði skóla-, velferðar- og heilbrigðismál.

Skráning og undanþágur verði samræmdar

Meðal tillagna verkefnahópsins eru samræmd skráning á viðveru nemenda, rafrænar umsóknir um undanþágur frá skólasókn, skilgreining mælanlegra markmiða og endurskoðun reglugerða og aðalnámskrár.

Ráðuneytið telur að samræmd skráning muni auðvelda greiningu á þróun skólasóknar og mat á því hvaða úrræði skili bestum árangri.

Næsta skólaár verður lærdómsár

Gert er ráð fyrir að skólaárið 2026–2027 verði nýtt sem lærdómsár þar sem viðmiðin verða prófuð í samstarfi við skóla, sveitarfélög og aðra sem koma að málefnum barna. Reynslan af þeirri innleiðingu verður síðan nýtt til að þróa kerfið áfram.

Markmiðið með breytingunum er að tryggja að brugðist verði fyrr við þegar skólasókn barns fer að versna og að ekkert barn fjarlægist skólasamfélagið án þess að það verði tekið eftir því og gripið inn í með viðeigandi stuðningi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila