Samstarfssamningur milli Hafrannsóknastofnunar og Náttúruminjasafns Íslands undirritaður

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, og Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands innsigluðu nýlega rammasamkomulag um samstarf stofnananna.

Markmið samkomulagsins er að stuðla að samstarfi fræðimanna og nemenda á vegum stofnananna um rannsóknir og miðlun á fræðasviðum sínum.

Undirritun samkomulagsins er liður í að styrkja tengsl stofnananna. Að sögn Harðar er það einkar mikilvægt fyrir Náttúruminjasafnið í því ljósi að nú er unnið hörðum höndum að gerð grunnsýningar í nýjum höfuðstöðvum safnsins á Seltjarnarnesi, Náttúruhúsinu í Nesi, sem til stendur að opna um mitt ár 2025.

Þema sýningar verður hafið, eðli þess og gerð, með áherslu á líffræðilega fjölbreytni og vistfræði. Áhersla þessi sem óneitanlega er gleðiefnið fyrir Hafrannsóknastofnun. Vonast er til að hin nýja aðstaða muni veita einstakt tækifæri varðandi miðlun og fræðslu á mikilvægi hafsins fyrir land og þjóð.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila