Samstarfssamningur við Varðberg undirritaður

Í tilefni af 75 ára afmæli Atlantshafssáttmálans hefur utanríkisráðuneytið gert samstarfssamning við Varðberg, félag um vestræna samvinnu og alþjóðamál.

Samstarfið snýr að kynningu og fræðslu á sviði öryggis- og varnarmála, í tengslum við 75 ára afmæli stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins. Utanríkisráðuneytið og Varðberg hafa átt í góðu samstarfi, bæði formlegu og óformlegu, allt frá stofnun félagsins.

„Samstarf utanríkisráðuneytisins við Varðberg hefur stuðlað að upplýstri umræðu og fræðslu um öryggis- og varnarmál í gegnum tíðina. Það er mikilvægt að efla upplýsta umræðu um gildi bandalagsins á þessum tímamótum og stuðla að skoðanaskiptum um öryggis- og varnarmál Íslands,“ sagði Bjarni Benediktsson við undirritun samningsins. 

Fram kemur í tilkynningu að samningurinn nái til afmarkaðra verkefna, þar með talið ráðstefnuhalds, kynninga og fræðslu. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila