Seðlabankinn hækkar vexti í 7,75%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka meginvexti bankans um 0,25 prósentustig. Vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því 7,75%. Fram kemur að allir nefndarmenn hafi stutt ákvörðunina.

Verðbólga enn yfir 5%

Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mælist nú 5,2%. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað, sérstaklega til skemmri tíma. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að hækkun verðbólguvæntinga frá því átök hófust í Mið-Austurlöndum hafi þó verið minni en eftir innrás Rússa í Úkraínu árið 2022. Þar vegi þungt að spennan í íslensku hagkerfi sé minni nú en þá.

Samkvæmt nýrri hagspá Seðlabankans eru nú horfur á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en bankinn spáði í febrúar.

Óttast áhrif hærra olíuverðs

Seðlabankinn segir hækkandi olíu- og hrávöruverð ásamt viðvarandi innlendum verðbólguþrýstingi hafa versnað verðbólguhorfur. Þá er varað við því að efnahagshorfur geti þróast enn verr ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði dragast á langinn eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu.

Tilbúin að hækka vexti frekar

Í yfirlýsingunni segir að peningastefnunefnd telji nauðsynlegt að herða taumhald peningastefnunnar í ljósi versnandi verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga. Nefndin segist jafnframt reiðubúin að hækka vexti enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni að markmiði Seðlabankans, þótt slíkt geti hægt enn meira á efnahagsumsvifum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila