Seðlabankinn hækkar vexti um 0,25%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 %. Meginvextir bankans, vextir á 7 daga bundnum innlánum, verða því 8%.

Fjórir nefndarmenn studdu vaxtahækkunina en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.

Verðbólga mældist 5,3% í júlí

Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýrri spá Seðlabankans er gert ráð fyrir að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár.

Aukning verðbólgunnar hefur fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.

Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist stöðug og er farin að hjaðna samkvæmt sumum mælikvörðum samhliða vaxandi slaka í þjóðarbúinu. Annarrar umferðar áhrif verðhækkana hafa jafnframt reynst minni en óttast var í fyrstu.

Verðbólguálag á markaði hefur einnig lækkað á ný eftir að hafa aukist í vor.

Verðbólguvæntingar enn of háar

Peningastefnunefnd telur verðbólguvæntingar enn of háar og undirliggjandi verðbólgu of mikla. Þótt gert sé ráð fyrir að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári sé óvissan áfram mikil.

Óvissan snýr meðal annars að þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindunni á íslenskum vinnumarkaði.

Nefndin telur því rétt að hækka vexti um 0,25 prósentur til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Ákvarðanir um næstu skref peningastefnunnar munu ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Hér að neðan má horfa á beina vefútsendingu frá kynningarfundi Peningastefnunefndar þar sem farið verður yfir ákvörðunina en hún hefst kl. 09:30.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila