Seðlabankinn hækkar vexti um 1%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1 prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,5%.

Í rökstuðningi bankans vegna hækkunarinnar segir að verðbólguþrýstingur heldi áfram að aukast og verðhækkanir nái til æ fleiri þátta. Verðbólga mælist nú 10,2% og undirliggjandi verðbólga er 7,2%. Verðbólguvæntingar til lengri tíma eru enn vel yfir markmiði og raunvextir bankans hafa lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar. Þá segir að útlit sé fyrir að verðbólga verði meiri á næstunni en spáð var í febrúar þótt hægt hafi á húsnæðismarkaði.

„Hagvöxtur var mikill í fyrra og vel umfram það sem þjóðarbúskapurinn getur staðið undir til lengdar. Innlend eftirspurn jókst meira en gert var ráð fyrir í febrúar og vísbendingar eru um að hún hafi verið kröftugri í ársbyrjun en talið var. Spenna á vinnumarkaði er jafnframt töluverð. Við þessar aðstæður er mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags, sérstaklega þegar litið er til mikillar spennu í þjóðarbúinu og komandi kjarasamninga. Peningastefnunefnd mun beita tækjum sínum til að tryggja betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum og koma verðbólgu í markmið.“ segir í tilkynningu frá Seðlabankanum

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila