Segir Flokk fólksins hafa gjörbreytt stöðu tekjulágra heimila

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra í síðdegisútvarpinu í dag um velferðarmál, stöðu tekjulágra heimila og árangur Flokks fólksins í ríkisstjórn. Þar kom fram að ráðherrann telur flokkinn hafa náð að hrinda flestum helstu kosningaloforðum sínum í framkvæmd, sérstaklega gagnvart eldri borgurum, öryrkjum og barnafjölskyldum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kjarabætur sem hafa skipt sköpum

Í viðtalinu sagði Inga að verðbólga, vaxtahækkanir og hækkandi framfærslukostnaður hefðu reynst mörgum heimilum mjög þung byrði undanfarin ár. Hún sagði Flokk fólksins hafa lagt megináherslu á að verja stöðu þeirra sem byggðu afkomu sína á almannatryggingum og lægri tekjum. Hún vísaði meðal annars til breytinga á tengingu almannatrygginga við launavísitölu og sagði markmiðið áfram vera að tryggja 450 þúsund króna útgreiðslu til þeirra sem reiddu sig á slíkar greiðslur. Að hennar mati hefði staða margra heimila verið mun verri ef flokkurinn hefði ekki komið að ríkisstjórnarsamstarfinu.

Inga sagði jafnframt að Flokkur fólksins hefði frá stofnun lagt áherslu á að bæta stöðu eldri borgara, öryrkja og barnafjölskyldna og að flokkurinn hefði staðið við flest þau loforð sem gefin voru fyrir kosningar.

Stærsta uppbygging hjúkrunarheimila frá upphafi

Ráðherrann fjallaði einnig um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við aldraða. Inga sagði ríkisstjórnina vinna að umfangsmestu uppbyggingu hjúkrunarrýma sem ráðist hefði verið í hér á landi og það hefði hún farið strax í þegar hún hafi verið félagmálaráðherra. Nefndi hún að áform væru um yfir 1.400 ný rými víðs vegar um landið. Að hennar mati hefði þjónusta við eldra fólk verið vanrækt um langt árabil og hún sagði mikilvægt að tryggja öldruðum mannsæmandi búsetu og þjónustu. Hún nefndi einnig fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og sagði sveitarfélög og ríki standa frammi fyrir auknum skyldum gagnvart fötluðu fólki.

Bjartsýn að ná inn manni í komandi borgarstjórnarkosningum

Inga var spurð um stöðu Flokks fólksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Hún sagðist bjartsýn á að flokkurinn næði manni inn í borgarstjórn og sagði frambjóðendur flokksins hafa reynslu af því að vinna með fólki sem ætti erfitt uppdráttar. Hún sagði ríkisstjórnarsamstarfið byggjast á málamiðlunum milli ólíkra flokka en taldi samstarfið hafa gengið vel. Að hennar mati væri mikilvægt að ólíkir flokkar gætu unnið saman að sameiginlegum verkefnum þrátt fyrir mismunandi áherslur í einstökum málaflokkum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila