
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að stærsta húsnæðismál landsins í dag væri að Samfylkingin ynni sigur í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kom fram í ræðu hennar á verkalýðskaffi í Iðnó síðdegis í dag í tilefni af 1. maí.
Í ræðunni fór hún yfir stöðu húsnæðismála og gagnrýndi sérstaklega skort á lóðaúthlutunum í Kópavogi. Hún sagði að þrátt fyrir að tíundi hver Íslendingur byggi í Kópavogi hefði bæjarstjórnin þar ekki úthlutað lóðum til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk, á undanförnum tíu árum. Hún lýsti því sem ámælisverðu.
Ríkið komi að uppbyggingu á ný
Kristrún fjallaði einnig um nýjan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var í vikunni. Þar kom fram að samið hefði verið um uppbyggingu 1.400 íbúða á ríkislóðum í Reykjavík með samstarfi ríkis og borgar.
Hún lagði áherslu á að um raunverulega uppbyggingarsamninga væri að ræða, ekki einungis áform, og að þetta væri í fyrsta sinn frá árinu 2017 sem ríkið kæmi með þessum hætti að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Markmiðið væri að tryggja framboð íbúða fyrir alla tekjuhópa.
Í því samhengi gagnrýndi hún að fyrri stjórnvöld hefðu ekki nýtt byggingarland ríkisins fyrr á sama tíma og húsnæðisverð hækkaði hratt.
Hafnar „Kópavogsskatti“ í leikskólamálum
Í ræðunni vék forsætisráðherra einnig að leikskólamálum og gagnrýndi gjaldtöku sem hún nefndi „Kópavogsskatt“. Hún sagði slíka gjaldtöku leggja auknar byrðar á barnafjölskyldur og vera ranga leið í opinberri stefnumótun.
Kristrún lagði áherslu á að stefnt væri að því að lögfesta rétt barna til leikskólavistar með sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga, í samræmi við það sem þekkist á öðrum Norðurlöndum. Hún sagði slíka breytingu marka stórt framfaraskref í velferðarmálum.
Að hennar mati byggi sú stefna á víðtækri vinnu ólíkra aðila, þar á meðal verkalýðshreyfingar, atvinnurekenda og opinberra aðila, og samræmdist einnig stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga um að gera leikskóla að lögbundnu hlutverki sveitarfélaga.
