Segja brot á mannréttindum vera öryggisógn

ose-plenaryUtanríkisráðherrafundur Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) var haldinn í Hamborg, Þýskalandi, dagana 8.-9. desember sl. Á fundinum voru samþykktar margvíslegar ályktanir sem lúta meðal annars afvopnunarmálum, baráttunni gegn hryðjuverkum og málefnum farenda og flóttamanna. Gréta Gunnarsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá ÖSE sat fundinn í fjarveru utanríkisráðherra og lagði í ræðu sinni áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum og mannréttindum, og jafnrétti fyrir alla.
Í ræðunni sagði hún brot á mannréttindum vera öryggisógn sem ekki mætti mæta með aðgerðarleysi.Þá sagði hún hatursorðræðu og umburðarleysi fyrir öðrum hópum færast í aukana og við því yrði að bregðast. Þá minnti hún á að íslensk stjórnvöld vildu vinna með stofnuninni að því að jafna og styrkja hlut kvenna, ekki síst í tengslum við ályktun Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila