Segja kerfishrun blasa við í þjónustu við fólk með ADHD

Kerfishruns blasir við í þjónustu hins opinbera við fólk með ADHD ef ekkert verður aðhafst. Þetta kom fram á aðalfundi ADHD samtakanna sem haldinn var í gær. Samtökin skora á Willum Þór Þórsson að grípa til tafarlausra aðgerða til þess að koma í veg fyrir þetta kerfishrun.

Benda samtökin á að vegna aðgerðarleysis stjórnvalda á liðnum árum hafi biðlistar eftir greiningu og meðferð meira en tvöfaldast og nú bíða um fjögur þúsund einstaklingar eftir að komast í greiningarferli. Biðtími fullorðinna eftir ADHD greiningu og meðferð verður að óbreyttu vel á annan áratug hjá þeim sem nú hefja ferlið samkvæmt tilvísun Heilsugæslulæknis.

Þá skora samtökin jafnframt á landlækni að hefja nú þegar ítarlega rannsókn á þeim fullyrðingum sem formaður Geðlæknafélags Íslands og fleiri hafi ítrekað sett fram um óvandaðar og tilefnislausar ADHD greiningar sálfræðinga og kollega sinna í geðlæknastétt og óhóflegar lyfjaávísanir lækna vegna ADHD. Segja samtökin að slíkar dylgjur frá m.a. helsta talsmanni geðlækna á Íslandi, sem hingað til hefur ekki verið mótmælt opinberlega af einum einasta geðlækni, lækni eða sálfræðingi, hljóti að gefa tilefni til tafarlausra aðgerða af hálfu landlæknis, enda beri þessum starfsstéttum að vinna samkvæmt skýrum leiðbeiningum Embættis Landlæknis um greiningu og meðferð vegna ADHD og ber embættið jafnframt  eftirlitsskildu með starfsemi heilbrigðisstarfsfólks.

„Með þessum órökstuddu fullyrðinum hefur verið vegið mjög alvarlega að starfsheiðri þeirra sálfræðinga, geðlækna og lækna sem koma að þjónustu við fólk með ADHD á Íslandi og vandi þeirra tugþúsunda einstaklinga sem glíma við ADHD smættaður af þeim sem síst skildi. Málflutningur þessi hefur skapað mikið vantraust um verklag og vinnubrögð heilbrigðisstarfsfólks og á sama tíma stórskaðað málstað þeirra sem krefjast stórbættrar og sjálfsagðrar þjónustu hins opinbera fyrir fólk með ADHD. Landlæknir einn, getur og verður að bregðast við og endurvekja traust á þessari mikilvægu heilbrigðisþjónustu.“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila