Ljóst var frá upphafi að langt hafi verið á milli flokka í stjórnarmyndunarviðræðunum sem fram hafa farið undanfarna daga og nú hefur verið slitið. Þetta kemur í tilkynningu frá Vinstri grænum sem send var á fjölmiðla. Í tilkynningunni segir orðrétt „ Undanfarna daga hafa Vinstri græn, Viðreisn, Björt framtíð, Píratar og Samfylkingin átt í formlegum viðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Að þeim hafa komið komið yfir þrjátíu manns fyrir hönd flokkanna sem lagt hafa fram mikla vinnu við að skapa grundvöll fyrir samstarfi þeirra í ríkisstjórn. Góður andi var í viðræðunum og fyrir lá að víða var ágætur samhljómur um málefni. Frá upphafi var þó ljóst að töluvert langt var á milli flokkanna í ýmsum málefnum, ekki síst hvað varðar fjármögnun nauðsynlegrar uppbyggingar í heilbrigðisþjónustu og menntamálum. Í dag kom í ljós að ekki voru allir flokkarnir með sannfæringu fyrir því að halda viðræðunum áfram og það var því niðurstaða Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna að viðræðum yrði ekki fram haldið„.