Sema Erla ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir

Sema Erla Serdaroglu, stofnandi Solaris, hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Málið tengist landssöfnun Solaris fyrir Palestínu árið 2024. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og fer aðalmeðferð fram í lok október.

Solaris stóð fyrir landssöfnun fyrir Palestínu snemma árs 2024 og báru samtökin ábyrgð á framkvæmd söfnunarinnar, utanumhaldi og ráðstöfun þeirra fjármuna sem söfnuðust.

Málið fyrst kært árið 2024

Einar A. Hálfdánarson hæstaréttarlögmaður kærði Semu Erlu, Maríu Lilju Þrastadóttur Kemp og Solaris vegna fjársöfnunarinnar í mars 2024.

Sema Erla greindi sjálf frá ákærunni á Facebook. Hún segir lögreglu hafa fellt málið niður tvisvar en Einar kært þær niðurstöður.

Hafnaði boði um að ljúka málinu með sekt

Sema Erla segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi í sumar boðið henni að játa brot á lögum um opinberar fjársafnanir, greiða sekt og fá brotið skráð í sakaskrá.

Hún hafnaði því boði.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gaf í kjölfarið út ákæru á hendur Semu Erlu. Samkvæmt frásögn hennar er hún ein ákærð þótt upphaflega kæran hafi einnig beinst að Maríu Lilju Þrastadóttur Kemp og Solaris.

Málsmeðferð hófst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og er aðalmeðferð málsins fyrirhuguð í lok október.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila