Sérsveitin handtók skipstjóra Bandero og tók yfir skipið

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, í kvöld, handtóku skipstjóra þess og tóku yfir stjórn skipsins. Skipið verður fært til hafnar í Reykjavík. Þetta segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Aðgerðin hófst eftir að áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og taldi öryggi sínu ógnað. Jafnframt er sagt að skipstjóri Bandero hafi ekki hlýtt fyrirmælum Landhelgisgæslunnar um að yfirgefa svæðið.

Sigldi inn fyrir 12 sjómílna landhelgina

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni barst stjórnstöð hennar tilkynning um sjötta tímann í dag um að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að Hval 9.

Varðstjórar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en engin svör bárust. Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var við eftirlit á svæðinu, hélt þá á vettvang og ítrekaði fyrirmælin án árangurs.

Skömmu síðar kom varðskipið Freyja á staðinn. Skipstjóra Bandero var þá fyrirskipað að stöðva vélar skipsins en hann varð ekki við þeim fyrirmælum.

Handtekinn um borð

Í kjölfarið var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út til að flytja sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í Freyju. Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt jafnframt á vettvang á aðgerðabátum.

Um miðnætti fóru sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar um borð í Bandero, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins.

Bandero verður flutt til Sundahafnar í Reykjavík þar sem gert er ráð fyrir að það komi síðar í nótt.

Dómsmálaráðuneytið upplýst um stöðuna

Landhelgisgæslan segir að aðgerðin hafi verið unnin í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra. Dómsmálaráðuneytið hafi jafnframt verið upplýst um framvindu málsins á öllum stigum aðgerðarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila